Menning | Tónlist | Morgunblaðið | 2.4.2026 | 6:30 Átta lesa sálmana í Hallgrímskirkju Flytjendur Passíusálmanna komu saman í listaverkagarði Einars Jónssonar nýverið og skoðuðu m.a. minnismerki hans um Hallgrím. Ljósmynd/Hilmar Þorsteinn Hilmarsson Björn Jóhann Björnsson [email protected] Setja bókamerki Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða að venju fluttir í heild sinni í Hallgrímskirkju á morgun, föstudaginn langa. Umsjón með flutningnum hefur Steinunn Jóhannesdóttir, leikkona og rithöfundur, en alls munu átta lesarar skipta með sér lestri sálmanna. Auk Steinunnar lesa þau Bergsveinn Birgisson rithöfundur, Brynhildur Björnsdóttir, leik- og söngkona, Guðrún H. Gunnarsdóttir, kennari og kennsluráðgjafi, Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt í íslensku við Háskóla Íslands, Sigurður Skúlason, leikari og þýðandi, Svanhildur Óskarsdóttir, bókmenntafræðingur og sérfræðingur á Árnastofnun, og Þorsteinn Davíðsson, grafískur hönnuður og málari. Lesturinn í kirkjunni hefst kl. 13 og stendur fram á kvöld, eða til um hálfsjö. Björn Steinar Sólbergsson organisti er tónlistarstjóri en flytjendur auk hans verða Steinar Logi Helgason, organisti og kórstjóri, og Jóna G. Kolbrúnardóttir söngkona. Þau munu flytja tónlist tengda sálmunum á heila tímanum yfir daginn, og í lok viðburðarins. Blandaður hópur lesara Steinunn hefur um nokkurra ára skeið haft umsjón með flutningi sálmanna í Hallgrímskirkju og valið til liðs við sig blandaðan hóp lesara, nokkra sem þekkja sálmana vel fyrir og hafa áður tekið þátt í flutningnum og aðra sem eru að koma að verkefninu í fyrsta skipti. „Þannig eignast Passíusálmarnir stöðugt nýja lesendur, nýja flytjendur og aðdáendur. Sumir lenda í langvarandi djúpköfun í þetta mikla drama,“ segir Steinunn. Björn Steinar Sólbergsson mun stjórna tónlistarflutningi. Ljósmynd/Aðsend Þess má geta að Roberto er fyrsti flytjandinn í kirkjunni á föstudeginum langa sem ekki hefur íslensku að móðurmáli. Þá vill svo til að um þessar mundir hafa sálmarnir verið í flutningi Svanhildar Óskarsdóttur á Rás 1, en það er upptaka frá árinu 1998 er Svanhildur var þrítug og á þeim tíma í hópi yngstu flytjenda sálmanna á þeim vettvangi. Sem hluti af undirbúningi flutningsins fór Steinunn nýverið með lesarana að Listasafni Einars Jónssonar, þar sem þau skoðuðu m.a. minnismerki Einars um sálmaskáldið Hallgrím Pétursson, og höfðu meðferðis ólíkar útgáfur af sálmunum. Steinunn segir minnismerkið ekki meðal hinna fyrirferðarmestu í garði Einars, en það sé afar heillandi og þrungið merkingu sem lengi megi íhuga. „Það sýnir skáldið rísa upp til hálfs á banabeðinum en fyrir ofan og aftan hinn þjáða má sjá ævi hans og arfleifð. Hann stendur fremstur sem leiðtogi fjöldans og heldur í upplyftum höndum annars vegar á krosstákni trúarinnar og hins vegar á hörpu skáldskaparins. Krossinn og harpan vega jafnt,“ segir Steinunn um verk Einars. Aðgangur að flutningi sálmanna í Hallgrímskirkju verður ókeypis og allir velkomnir að staldra við, hlýða á lesturinn og njóta kyrrðar og íhugunar á þessum drottins degi. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Lögin hans Valgeirs flutt á skírdag Dómorganisti dreifir huganum úti á sjó Móðirin stuðningsmaður Hitlers Iðkað tónlistina frá barnsaldri Richard Schwennicke nýr tónlistarstjóri Óperunnar Þýskur ráðherra gekk út í fússi Aldrei á Bræðsluna „Kærleikurinn ríkir alltaf á blúshátíðinni“ Katla Sólness hlaut tvenn verðlaun á Stockfish „Til fjandans með drottninguna!“ Móðirin stuðningsmaður Hitlers Richard Schwennicke nýr tónlistarstjóri Óperunnar Dómorganisti dreifir huganum úti á sjó „Kærleikurinn ríkir alltaf á blúshátíðinni“ Lögin hans Valgeirs flutt á skírdag Katla Sólness hlaut tvenn verðlaun á Stockfish Þýskur ráðherra gekk út í fússi Þegar villtu börnin leika sér Þarf dauðaþögn til að skrifa Iðkað tónlistina frá barnsaldri „Til fjandans með drottninguna!“ Bubbi spáir hruni Spotify Þora að fara í hættulegt ferðalag Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Reynir að vera sem ósýnilegust Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Enginn gerir mig reiðari Móðirin stuðningsmaður Hitlers Bríet fer í tónleikatúr um páskana Katla hlýtur Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar Áhugaverð viðtöl Menning Yuja Wang í töfraheimi Gabríelu Menning Þarf dauðaþögn til að skrifa Menning „Þau voru svolítið hneyksluð í fyrstu“ Menning Skaut af sér handlegginn Menning Hrá, hörð og kraftmikil Carmen Mest lesið Í gær Í vikunni Lögin hans Valgeirs flutt á skírdag Dómorganisti dreifir huganum úti á sjó Móðirin stuðningsmaður Hitlers Iðkað tónlistina frá barnsaldri Richard Schwennicke nýr tónlistarstjóri Óperunnar Þýskur ráðherra gekk út í fússi Aldrei á Bræðsluna „Kærleikurinn ríkir alltaf á blúshátíðinni“ Katla Sólness hlaut tvenn verðlaun á Stockfish „Til fjandans með drottninguna!“ Móðirin stuðningsmaður Hitlers Richard Schwennicke nýr tónlistarstjóri Óperunnar Dómorganisti dreifir huganum úti á sjó „Kærleikurinn ríkir alltaf á blúshátíðinni“ Lögin hans Valgeirs flutt á skírdag Katla Sólness hlaut tvenn verðlaun á Stockfish Þýskur ráðherra gekk út í fússi Þegar villtu börnin leika sér Þarf dauðaþögn til að skrifa Iðkað tónlistina frá barnsaldri „Til fjandans með drottninguna!“ Bubbi spáir hruni Spotify Þora að fara í hættulegt ferðalag Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Reynir að vera sem ósýnilegust Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Enginn gerir mig reiðari Móðirin stuðningsmaður Hitlers Bríet fer í tónleikatúr um páskana Katla hlýtur Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar Áhugaverð viðtöl Menning Bæði hættulegur og nærandi Menning Gísli Örn missti fimm kíló í ferlinu Menning „Maður verður einfaldlega að hlýða“ Menning Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Menning Óttaðist að missa barnið sitt