Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gular viðvaranir í gildi víða á landinu í dag

Read Full Article →

Gular viðvaranir eru í gildi víða á landinu í dag. Sem stendur er gul viðvörun í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra og miðhálendi. Suðaustan hvassviðri eða stormur er víða á suðvesturströnd landsins. Á Norður- og Austurlandi er þurrt að mestu. Þó lægir hratt með morgninum en búast má við éljum síðdegis. Gular viðvaranir falla úr gildi á Breiðafirði, Faxaflóa og Suðurlandi eftir klukkan 10:00. Þá færist veður yfir Norður- og Austurland þar sem búast má við ákveðinni suðaustanátt og ofankomu fram undir miðnætti. Á hádegi tekur gul viðvörun gildi á Norðurlandi eystra og klukkan tvö tekur gul viðvörun gildi á Austurlandi að Glettingi. Hiti verður um eða yfir frostmarki. Hætta á að færð spillist í dag Leiðindaveður verður því víða á landinu í dag og gæti færð spillst á fjallvegum. Vakin er athygli á því á vef Vegagerðarinnar að með morgninum og til um klukkan 11:00 verður mjög hvasst og blint í skafrenningi á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Síðan lægir, en snjóar áfram í 2 til 3 klukkustundir. Á fjallvegum Austfjarða verður hvass vindur og hríð í eftirmiðdaginn og fram á nótt. Vegfarendur eru beðnir að athuga að mikið er um brotholur í vegum víða um landið og þarf því að aka með sérstakri gát. Mun rólegra veður verður á morgun. Þó má búast við austan kalda eða strekkingi á Norðausturlandi með snjókomu. Hægari vindur í öðrum landshlutum.

Share this article