Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.4.2026 | 23:07 Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Gissur og Ólína sýndu feiknatilburði í leik og flutningi. Mörgum brúðkaupum var lýst og hér sýnir Gissur svipbrigði Gunnars þegar hann giftist Hallgerði. Ljósmyndir/Helgi Jónsson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Það er óhætt að segja að Guðni Ágústsson sé hvergi af baki dottinn þegar kemur að því að útfæra Njáls sögu. Síðastliðið sumar stóð hann að Njáluhátíð á Rangárvöllum sem stóð í nokkra daga en nú um helgina streymdu aðdáendur Njálu í Salinn í Kópavogi til þess að sjá nýjustu útfærsluna. Að þessu sinni fékk Guðni þau Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing og Gissur Pál Gissurarson óperusöngvara með sér í lið ásamt píanóleikaranum Matthildi Önnu Gísladóttur. Uppleggið var einfalt, helstu atburðum sögunnar var lýst af þríeykinu og inni á milli söng Gissur Páll íslensk lög sem gáfu frásögninni enn meiri kraft. Umgjörðin í Salnum var sömuleiðis einföld og áhrifarík þar sem þrjú ræðupúlt sveipuð merktum skikkjum Njáls sögu stóðu á miðju sviðinu og svartur flygill og rauður litur umlukti síðan sviðið allt, eins og eldbjarmi. Sýningin hófst með þrumuraust Guðna og áður en Ólína og Gissur komust að var spilaður upplestur Hallgríms Helgasonar þar sem menningaráhrifum Njálu var lýst – og ekki vildi hann skipta Njáls sögu út fyrir nokkurn kastala í Evrópu. Sagan var að miklu leyti sögð út frá sjónarhóli kvenna og tókst Ólínu einstaklega vel að lýsa tilfinningum þeirra og stöðu og steig hún áreynslulaust inn í hlutverk Hallgerðar, Bergþóru og Hildigunnar Starkaðardóttur, auk annarra kvenpersóna eins og Gunnhildar kóngamóður, Sæunnar með arfasátuna og Rannveigar móður Gunnars á Hlíðarenda. Áður en sagan hófst söng Gissur „Landið er fagurt og frítt“. Sviðið var baðað rauðum ljósum og eldur brann í æðum, bæði flytjenda og áhorfenda sem sýndu mikinn fögnuð við lok sýningarinnar. Þjófsaugu komin í ættir vorar Frásögnin hófst í baðstofunni á Höskuldsstöðum þegar Hallgerður langbrók var lítil stúlka og Höskuldur faðir hennar spurði Hrút bróður sinn hvernig honum litist á stúlkuna. Hrútur svaraði því til að mærin væri falleg og mundu margir þess gjalda, en bætti við: „En eigi veit ég hvaðan þjófsaugu koma í ættir vorar.“ Það var magnað hvernig Ólína lýsti tilfinningum Hallgerðar við að heyra föðurbróður sinn lýsa sér með þessum hætti. Þau héldu áfram að segja frá Hrúti sem var heitbundinn Unni Marðardóttur en átti í ástarsambandi við Gunnhildi kóngamóður í Noregi sem lagði á hann þau örlög að geta ekki gagnast Unni, þar sem hann laug að henni að hann væri ekki heitbundinn konu á Íslandi. Hjónabönd Hallgerðar voru rakin en hún var fyrst gefin 14 ára gömul án þess að vera spurð. Það hjónaband endaði með því að bóndi hennar rak henni kinnhest og hún lét í framhaldinu Þjóstólf fóstra sinn drepa hann. Næst giftist hún Glúmi, sem hún elskaði, en honum urðu á þau mistök að gefa henni kinnhest sem varð til þess að Þjóstólfur drap hann líka. Hallgerður brást þá við með því að senda hann til Hrúts sem drap Þjóstólf. Þá vék sögunni á Alþingi þegar Gunnar á Hlíðarenda bað Hallgerðar. Og enn var það Hrútur sem lagði sitt til málanna og varaði Gunnar við konunni og sagði þetta vera girndarráð. Í framhaldi af því atriði söng Gissur „Hvað veldur þeirri sorg“. Brúðkaupinu á Hlíðarenda er lýst þegar Þorgerður dóttir Hallgerðar og Glúms er gefin Þráni Sigfússyni 14 ára og enn fór Ólína á kostum þegar hún lýsti stöðu stúlkunnar við þessar aðstæður. Engin vil ég hornkerling vera Svo var sagt frá veislunni á Bergþórshvoli þegar Bergþóra vísaði Hallgerði út í horn, en hún vildi engin hornkerling vera og allt varð vitlaust þegar þær tókust á um kartneglur á hverjum fingri, karl hinn skegglausa og svipleg örlög fyrri manna Hallgerðar. Eftir það hófust húskarladrápin þegar þær skiptust á að drepa húskarla hvor annarrar, sem þeir Njáll og Gunnar sömdu svo jafnharðan um bætur fyrir. Svo rennur sagan áfram í liprum flutningi. Hallgerður stal mat frá Otkeli í Kirkjubæ og lét kveikja í búrinu sem varð til þess að Gunnar laust hana kinnhest. Gunnar býður Otkeli bætur, en hann afþakkar og segir Gunnar hafa grátið undan sér er hann reið yfir hann. Gunnar drap Otkel og síðan Oddgeir son hans og var dæmdur í útlegð sem hann fór ekki í og var drepinn heima á Hlíðarenda. Í þeim bardaga bað hann Hallgerði að ljá sér leppa úr hári sínu, því á meðan hann hefði bogann gæti hann varið sig. Þá minnti Hallgerður hann á kinnhestinn og sagði að sig varðaði engu hvort hann verði sig lengur en skemur. Söngur Síðasta atriðið þegar Gissur söng „Hamraborgin rís há og fögur“. Endar með sögulegri sátt Eftir dráp Gunnars fluttu þau Guðni, Ólína og Gissur Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson og var það mjög áhrifaríkt. Gissur söng „Ég lít í anda liðna tíð“. Eftir víg Gunnars fóru Njálssynir í víking og kynntust Kára Sölmundarsyni í Suðurey og lentu í vandræðum við Noregskonung vegna Þráins Sigfússonar sem kom sakamanni undan til Íslands. Eftir að þeir komu heim drap Skarphéðinn Þráin og í framhaldi af því tók Njáll Höskuld son hans og Þorgerðar í fóstur. Höskuldur varð eftirlæti Njáls og fékk hann honum goðorð í Hvítanesi því það var skilyrði Hildigunnar Starkaðardóttur að ef þau giftust yrði hann að vera goðorðsmaður. Afbrýðisemin kraumaði í Njálssonum vegna upphefðar Höskuldar og að undirlagi Marðar Valgarðssonar drápu þeir hann. Eftirmál vígs Höskuldar urðu þau að Brennu-Flosi, frændi Hildigunnar, brenndi Njál og syni hans inni á Bergþórshvoli. Kári slapp einn úr brennunni og hefndi, en Þórður sonur hans brann þar inni ásamt Njáli, Bergþóru og Njálssonum. Sagan endaði með sáttinni þegar Kári strandaði skipi sínu og leitaði náðar Flosa sem tók honum fagnandi og til að tryggja sáttina giftust þau Kári og Hildigunnur, sem þar gekk að eiga einn af banamönnum eiginmanns síns. Sýningunni lauk svo með því að Gissur söng Hamraborgina. Þessi uppfærsla á Njálu var stórvel heppnuð. Ólína og Gissur sýndu í þessu verki stórgóða leiklistarhæfileika og Guðni var þéttur með þeim og hélt áhorfendum á þeim stað, að þeir væru staddir á Íslandi árið 1000. Átök Hallgerður varð reið þegar Gunnar vildi ekki troða illsakir við Njál. Njála Sagan sögð að hætti Guðna eins og hann hefði verið þar sjálfur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Joachim Löw rýfur þögnina Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug „Fólk hefur gengið of langt“ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biðlistinn bara lengist og lengist Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Landsréttar á ný Eldsneytisbirgðir í 45 daga Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Joachim Löw rýfur þögnina Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug „Fólk hefur gengið of langt“ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Þúsundir streyma í Hlíðarfjall Framtíð einu farþegaferju landsins æ óvissari Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi:

Share this article