Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.4.2026 | 22:55 Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Hjalti Páll Þorvarðsson átti í því að gera geimskotið að veruleika, en í fararbroddi danska fyrirtækisins Rovsing sá hann Geimferðastofnun Bandaríkjanna fyrir háþróuðum tæknibúnaði. Samsett mynd/AFP/Ljósmynd/Aðsend Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Artemis-geimáætlunin Óvenjuleg vandamál geimfaranna Artemis yfirgefur sporbraut Jörðu Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Beint: Halda lengra út í geim en nokkru sinni fyrr » Fleiri tengdar fréttir Ísland hefur komið víða við sögu Artemis-leiðangursins sem nú heldur til tunglsins, en lítið hefur þó farið fyrir ríflega áratuga löngu starfi Íslendings við þróun eldflaugarinnar Óríon, sem nú ber geimfarana lengra en nokkur manneskja hefur haldið áður. Greint hefur verið frá því á vettvangi mbl.is að geimfararnir hafi æft sig og undirbúið fyrir ferðalagið á hálendi Íslands, svo og þætti Íslands í áætluninni sem aðilar að Artemis-sáttmálanum. Frétt af mbl.is Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Þó er enn óupptalinn sá þáttur sem Íslendingurinn Hjalti Páll Þorvarðsson átti í því að gera geimskotið að veruleika, en í fararbroddi danska fyrirtækisins Rovsing sá hann Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) fyrir háþróuðum búnaði sem nýttist við að prufukeyra og öryggistryggja geimfarið. Í starfi sínu hefur hann starfað með NASA að verkefninu í hartnær tólf ár, og hyggst halda því samstarfi áfram á ýmsa vegu í framtíðarverkefnum Artemis-áætlunarinnar. Frétt af mbl.is Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Leiðandi í geimtæknibransanum Hjalti er forstjóri danska tæknifyrirtækisins Rovsing, sem er leiðandi meðal evrópskra fyrirtækja í geimtæknibransanum. „Við hjá Rovsing erum að gera það sem heitir á ensku „electrical ground support equipment“, eða rafbúnaður til stuðnings á jörðu niðri, sem notaður er þegar verið er að prufukeyra geimfarið,“ segir hann í samtali við mbl.is. „Við eigum hlut í ESM-hluta geimflaugarinnar sem kemur frá Evrópsku geimferðarstofnuninni (ESA), en það eru sólarsellurnar, batteríin og rakettumótorarnir sem voru til dæmis notaðir í dag þegar það þurfti að spyrna flauginni úr sporbaug jarðar og í átt að tunglinu.“ Frétt af mbl.is Artemis yfirgefur sporbraut Jörðu Líkja meðal annars eftir geislum sólarinnar Hjalti segir fyrirtækið fyrst og fremst hafa unnið að prófunarkerfum fyrir sólarsellurnar, sem gegni því mikilvæga hlutverki að sjá geimfarinu fyrir þeirri raforku sem það þarfnast úti í geimnum. „Það þarf sérstakan búnað til þess að líkja eftir geislum sólarinnar, og það er þannig búnaður sem við þróum – hann líkir eftir sólargeislunum eins og þeir verða þegar geimfarið er á sporbraut um jörðu, á leiðinni til tunglsins, á bak við tunglið og á leiðinni aftur til jarðar,“ segir hann. „NASA keyrir þessar prófanir til þess að geta brugðist við ef eitthvað gerist – hvað gerir hugbúnaðurinn til dæmis ef…þetta gerist, eða hvað ef þetta þarna bilar, og svo framvegis.“ Í einni slíkri prófun höfðu geimfararnir setið um borð í prufugeimflaug í heila tíu daga, sem er sá tími sem búist er við að leiðangurinn taki, og brugðist við þeim vandræðum sem fyrir þá voru lögð. Frétt af mbl.is Óvenjuleg vandamál geimfaranna Sólargeislarnir skipta sköpum við raforkuöflun geimflauganna, og það er einmitt sú tækni sem Rovsing prófar. AFP/Geimferðastofnun Bandaríkjanna Munu vinna að Artemis-leiðöngrum framtíðar Hjalti mun halda áfram að taka þátt í þróun ESA á tæknibúnaði fyrir Artemis-leiðangra framtíðarinnar, en þáttur ESA í leiðöngrunum kann að verða enn þá viðameiri ef orðið verður við óskum ESA um aukið samstarf milli stofnananna tveggja við þróanir leiðangranna. „Við verðum áfram með í þessu þegar þetta heldur áfram næstu árin, næsti Artemis-leiðangur verður 2027 og svo árið 2029 mun Artemis-4 fara með fólk til tunglsins,“ segir Hjalti. „Við erum framarlega á okkar sviði og ætlum að halda því áfram að þróa lausnir og vera samkeppnishæfir, og munum halda áfram að vinna að þessum verkefnum.“ Starfsemi Rovsing er einnig öflug utan geimferðabransans, en tæknibúnaður frá fyrirtækinu hefur meðal annars verið notaður við þróun evrópskra og bandarískra gervihnatta. Frétt af mbl.is Beint: Halda lengra út í geim en nokkru sinni fyrr Prófa Mars-tækni á tunglinu Ákveðið geimkapphlaup um tunglið er í uppsiglingu að sögn Hjalta, en í því kapphlaupi mun það skipta löndin lykilmáli að tryggja sér sem besta staðsetningu fyrir þær tunglbækistöðvar sem þau hyggjast byggja. Þar sé hægt að prófa þá tækni sem gera kunni manninum kleift að komast alla leið til plánetunnar Mars og koma upp bækistöðvum þar. „Það tekur 4-5 daga að komast til tunglsins, en 3-6 mánuði að komast til Mars ef ferðast er á sama hraða,“ segir Hjalti. „Þannig að það er mikilvægt að prófa þá tækni sem verður notuð til að byggja upp bækistöðvar á Mars, sem verður líklega gert á tunglinu, og þar komum við inn með okkar búnað.“ Hjalti segir það jafnframt gleðiefni að almenningur veiti geimferðum sem þessum athygli. „Þetta setur fókus á það hvað við getum, mannfólkið, og það eru vonandi eitthvað sem sameinar frekar en sundrar og leiðir til góðs.“ Tengdar fréttir Artemis-geimáætlunin Óvenjuleg vandamál geimfaranna Artemis yfirgefur sporbraut Jörðu Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Beint: Halda lengra út í geim en nokkru sinni fyrr » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Joachim Löw rýfur þögnina Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug „Fólk hefur gengið of langt“ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Beint: Halda lengra út í geim en nokkru sinni fyrr Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Joachim Löw rýfur þögnina Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug „Fólk hefur gengið of langt“ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein Af hverju Bab al-Mandeb? Biðlistinn bara lengist og lengist Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article