- What: Gas tank shortages reported ahead of grill season
- Impact: Consumers planning to use gas grills
Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, lætur vaða á súðum þessa dagana. Ríkismiðillinn leitar reglulega til hans eftir efnahagsútskýringum. Þannig var Ásgeir Brynjar í Silfrinu á mánudag, þar sem hann fór yfir efnahagsmálin ásamt Bjarnheiði Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Kötlu DMI, og Guðmundi Steingrímssyni harmóníkuleikara. Ásgeir tók sérstaklega fram í þættinum að hann fylgdist með erlendum fjölmiðlum og af orðum hans mátti skilja að helsta ástæðan fyrir því að Ásgeiri Jónssyni og öllum hinum seðlabankastjórunum gengi svo illa að ná niður verðbólgunni væri að þeir styddust við vifturit (e. fan chart) eins vestræns seðlabanka. En Ásgeir er ekki við eina fjölina felldur. Hann heldur úti hlaðvarpinu H fyrir hagfræði ásamt Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR. Í síðasta þætti var hann með dýrmæta neytendaráðgjöf, en þá sagði hann frá því að grillarar þessa lands færu ekki varhluta af stríðsástandinu við Persaflóa og sagði frá því hvernig þeir væru farnir að hamstra gaskúta fyrir grillsumarið. Hrafnar eru spenntir fyrir því hverju Ásgeir gasar næst yfir þjóðina. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.