Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óheppilegt að 700 þúsund krónum var varið í páskaegg

Read Full Article →

Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Flokks fólksins, segir óheppilegt hve miklum fjármunum hafi verið varið í páskaegg hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, sem Inga Sæland, formaður flokksins, fer fyrir. Vísir greindi frá því í vikunni að kostnaður við páskaegg hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu hafi numið yfir 700 þúsund krónum. Ráðherra gaf ráðherrum ríkisstjórnarinnar einnig páskaegg. Eggin sjálf, sem voru frá Nóa Síríus og af stærð 7, kostuðu 457.933 krónur og kostnaður við gerð sérhannaðra umbúða nam 239.200 krónum, að undanskildum virðisaukaskatti. Heimir Már, sem var gestur í Vikulokunum á Rás 1, sagði að málið væri óheppilegt en að fjárhæðirnar væru ekki þannig að þær myndu velta öllu um koll. Starfsfólk ráðuneytisins hefði tekið upp á þessu, en aðspurður hvort þetta væri þá starfsfólki að kenna sagði hann auðvitað að ráðherra bæri ábyrgð á sínu ráðuneyti. Eitt ráðuneyti gaf ekki egg Þetta er talsvert meiri kostnaður en fór í páskaegg hjá hinum ráðuneytunum, samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins í dag. Fjármála- og efnahagsráðuneytið var eina ráðuneytið sem gaf starfsfólki sínu ekki páskaegg. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið varði 106 þúsund krónum í páskaegg handa sínu starfsfólki. Innviðaráðuneytið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið gáfu starfsfólki páskaegg fyrir 116 þúsund krónur hvort. Hjá forsætisráðuneytinu var kostnaður vegna páskaeggjagjafa til starfsfólks 130 þúsund krónur og hjá atvinnuvegaráðuneytinu nam hann 256 þúsund krónum. Kostnaður vegna páskaeggja hjá þeim fjórum ráðuneytum sem eftir eru, þ.e. dómsmálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytinu liggur ekki fyrir, en hin þrjú fyrrnefndu gáfu starfsfólki egg númer 4 frá Nóa Síríus, og hið síðastnefnda egg númer 5, samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins. Vikulokin í dag má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Þar voru einnig Andrés Jónsson og Friðjón Friðjónsson gestir. Umræðan um páskaeggin hefst í kringum 50. mínútu. Framkvæmdastjóri Flokks fólksins segir ekki heppilegt að stórri fjárhæð hafi verið varið í kaup á páskaeggjum og sérhönnuðum umbúðum fyrir starfsfólk mennta- og barnamálaráðuneytisins og ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Share this article