Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.4.2026 | 21:30 Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Endurkoma Harrys Styles með nýrri plötu og fjölda stórtónleika hefur vakið mikla athygli. Hann treður tólf sinnum upp á Wembley í sumar. AFP/Adrian Dennis Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Einu sinni þótti það til marks um að listamenn væru á hápunkti ferils síns ef þeir seldu upp á tónleika í Madison Square Garden í New York eða O2 Arena í London. Í dag þykir það varla heyra til tíðinda. Núna keppast stóru listamennirnir við að halda sem flesta tónleika í einu á stærstu stöðunum – og innkoman er hreint ótrúleg. Í umfjöllun Guardian kemur fram að söngkonurnar Raye og Olivia Dean munu hvor um sig halda sex tónleika í O2-höllinni á þessu ári en hún tekur 20 þúsund gesti. Dave heldur fjóra, Ariana Grande heldur hvorki meira né minna en tíu. Harry Styles, sem er ein stærsta poppstjarnan í dag, kynnti nýlega að hann ætlaði að halda 30 tónleika í Madison Square Garden. Alls sóttu yfir 11 milljónir manna um aðgang á forsölu á þá tónleika. Landar hans munu svo flykkjast til London þar sem hann heldur 12 tónleika á Wembley-leikvanginum. Það er metfjöldi, aldrei hefur nokkur haldið jafn marga tónleika þar á einum legg tónleikaferðar. Taylor Swift hélt aðeins átta. Miðaverð hækkar mikið Miklir peningar eru í spilunum. Eras-tónleikaferðalag Swift, sem skilaði meira en 2 milljörðum dala, um 250 milljörðum króna, virðist ekki lengur vera algjör undantekning. Music of the Spheres-tónleikaferðalag Coldplay hefur staðið yfir í fjögur ár og skilað 1,5 milljörðum dala, og After Hours Til Dawn-tónleikaferðalag The Weeknd er einnig komið á fjórða ár og hefur farið yfir einn milljarð dala. Harry Styles ætlar ekki að vera minni maður en þetta ágæta fólk. Í umfjöllun The Times kemur fram að meira en milljón gestir sæki tónleika hans á Wembley og að þeir muni eyða 709 milljónum punda – 117 milljörðum króna – í tengslum við þá. Búist er við að gestir sem koma til borgarinnar eyði 200 milljónum punda í veitingar, verslun og gistingu á þessum 12 dögum. Aðdáendur eru margir ósáttir við miðaverðið hjá Styles. Dýrasti miðinn í sæti á Wembley í ár er 466 pund, 77 þúsund krónur. Það er hækkun upp á 147 prósent frá hæsta verði á tónleika hans á sama stað árið 2023. Á sama tíma hefur ódýrasti miðinn í stæði hækkað um 90 prósent, úr 76 pundum fyrir þremur árum í 145 pund á þessu ári. Dýrasti VIP-pakkinn kostar hins vegar 725 pund, 120 þúsund krónur. Þeir sem punga því út fá að mæta snemma á tónleikana, gjafapakka með varningi og „myndatökutækifæri fyrir framan VIP-bakgrunn“. TikTok ýtir undir vinsældir Eftir covid var mikil uppsöfnuð eftirspurn og listamenn flykktust í tónleikaferðalög. Ekki sér enn fyrir endann á því en nú hefur sú þróun orðið að stóru stjörnurnar virðast stærri en nokkru sinni fyrr. Í umfjöllun Guardian er rakið að auknar vinsældir stórtónleika hafi nokkuð að gera með samfélagsmiðilinn TikTok enda hafi klippur af listamönnum sem fá sérstaka gesti eða frumflytja ný lög tilhneigingu til að fara á flug þar. Samfélagsmiðlar virki einfaldlega hvetjandi og fólk vilji fá aðgang að einhverju sem enginn annar hefur – eða vera fyrsta manneskjan til að fá aðgang þar að. Haft er eftir umboðsmanni í tónlistarbransanum að eftirsóttur miði sé orðinn stöðutákn, „að segjast hafa verið á Eras-túrnum eða hjá Beyoncé, það er risastórt.“ Á sama tíma lýsir viðkomandi yfir áhyggjum af minni listamönnum. Þegar tæma þarf veskið til að sjá stórtónleika eru kannski ekki eftir neinir peningar fyrir þá minni. Minni kostnaður, meiri gróði Sífellt fleiri stórir listamenn velja að koma sér fyrir í einni tónleikahöll eða á leikvangi nokkur kvöld í röð. Þetta gerði Adele til að mynda í München árið 2024 með tíu tónleikum í röð. Þetta kallar á minni fyrirhöfn en ella enda þarf sviðsmynd og annað aðeins að vera sett upp og tekið niður einu sinni. Slíkar sýningar færa ferðakostnaðinn yfir á neytandann, frekar en á tónleikaferðalag listamannsins sjálfs, sem þýðir frekari fjárútlát fyrir aðdáendur, segir í umfjöllun Guardian . Ariel King, blaðamaður hjá tónleikablaðinu Pollstar, segir að í Bandaríkjunum hafi eftirspurn eftir tónleikum í raun dregist saman undanfarið og bendir á að fleiri tónleikar séu haldnir á leikvöngum og í tónleikahöllum vegna þess að stórir listamenn „eru þeir sem hafa efni á að fara stöðugt í tónleikaferðir“. Það er erfitt fyrir meðalstóra listamenn sem fara í tónleikaferðir um leikhús, sem „fá ekki eins miklar tekjur, hafa takmarkaða framleiðslu en kostnaðurinn er samt hár“ – á meðan stærðarhagkvæmni kemur til sögunnar á leikvanga- og tónleikahallastiginu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tveir fengu 88 milljónir Landsliðskonur deildarmeistarar í Þýskalandi Ítalska þjóðin enn í sárum eftir tapið Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Hákon skoraði í sannfærandi sigri Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Fleiri Evrópuríki lækka gjöld á eldsneyti Sífellt fleiri Íslendingar velja sykurskertar hátíðarblöndur Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Mest lesið Í gær Í vikunni Leigja út heimili á ríflega milljón Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Peningunum betur varið í annað Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ Íbúðir ekki heimilar í Naustinu 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Tveir fengu 88 milljónir Landsliðskonur deildarmeistarar í Þýskalandi Ítalska þjóðin enn í sárum eftir tapið Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Hákon skoraði í sannfærandi sigri Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Þúsundir streyma í Hlíðarfjall Einn úr áhöfninni fundinn Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Mest lesið Í gær Í vikunni Leigja út heimili á ríflega milljón Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Peningunum betur varið í annað Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ Íbúðir ekki heimilar í Naustinu 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana

Share this article