Innlent | mbl | 6.4.2026 | 7:27 Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Austan bylur gengur yfir landið í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Næsta lægð á miðvikudag Bíll valt á Hellisheiði Fjórum ferðum þegar aflýst Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina » Fleiri tengdar fréttir Stórhríð gengur yfir landið í dag og hefur Veðurstofan gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir allt land. Fjölmargir vegir eru á óvissustigi og Icelandair hefur fellt niður allt sitt innanlandsflug. Ferðir Norlandair eru enn á áætlun en öllum ferðum Icelandair út daginn hefur verið aflýst. Þá hefur Icelandair aflýst nokkrum millilandaflugferðum, en Reykjanesbrautin er á óvissustigi á milli klukkan 11 og 20 í dag. Vegurinn gæti því lokað með litlum fyrirvara. Frétt af mbl.is Fjórum ferðum þegar aflýst Vegir geta lokað með litlum fyrirvara Lögregla bað fólk um að ferðast ekki á milli landshluta í dag á meðan veðrið gengur yfir. Mikil umferð var til dæmis um Hellisheiði síðdegis í gær og langt fram á kvöld. Frétt af mbl.is Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Búið er að loka veginum frá Markarfljóti að Öræfasveit og þá verður Holtavörðuheiði lokað klukkan 12. Ólíklegt þykir að hún opni fyrr en á þriðjudag. Auk Reykjanesbrautarinnar eru Suðurstrandarvegur, Mosfellsheiði, Kjalarnes, Þrengslin og Hellisheiði á óvissustigi frá klukkan 11 til 22 eða 23 í kvöld. Á Vesturlandi eru Vatnaleið, Fróðárheiði og Svínadalur á óvissustigi frá klukkan 14 til 23. Brattabrekka er á óvissustigi frá klukkan 11 til klukkan 23. Þá verður Holtavörðuheiðin lokuð um hádegi líkt og áður sagði. Á Vestfjörðum eru Klettsháls, Raknadalshlíð, Kleifaheiði, Hálfdán, Miklidalur og Gemlufallsheiði á óvissustigi frá klukkan 16 til 23. Ísafjarðardjúp, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldar eru á óvissustigi frá klukkan 15 til 23. Á Norðurlandi eru Vatnsskarð, Þverárfjall og Siglufjarðarvegur á óvissustigi frá klukkan 13 til 23. Víkurskarð og Öxnadalsheiði eru á óvissustigi frá klukkan 15. Á Norðausturlandi eru Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði á óvissustigi frá klukkan 14. Sandvíkurheiði, Brekknaheiði, Raufarhöfn, Hófaskarð og Hólaheiði eru á óvissustigi frá klukkan 16. Leiðin milli Reyðarfjarðar og Djúpavogs verður á óvissustigi frá klukkan 18. Þá verða Fagridalur, Vatnsskarð eystra og Fjarðarheiði á óvissustigi frá klukkan 14. Vegurinn milli Djúpavogs og Hafnar verður á óvissustigi frá klukkan 14 og þá er Lyngdalsheiðin á Suðurlandi á óvissustigi á milli klukkan 11 og 23. Síðustu veðurviðvaranirnar ganga úr gildi klukkan 3 í nótt á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi. Tengdar fréttir Veður Næsta lægð á miðvikudag Bíll valt á Hellisheiði Fjórum ferðum þegar aflýst Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Næsta lægð á miðvikudag Dóttir Schumachers tjáði sig um slysið í fyrsta sinn Vikumatseðill Guðrúnar er eins og ferðalag á fjarlægar slóðir Nakti maðurinn í glugganum Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Láta alzheimer ekki stoppa sig Þyngir baráttuna við verðbólguna Gekk eins og í „Disney-mynd“ Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Mest lesið Í gær Í vikunni Bíll valt á Hellisheiði Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fjórum ferðum þegar aflýst Það magnaðasta sem hægt er að sjá Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Láta alzheimer ekki stoppa sig Nýi garðskálinn glæsilegur Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Næsta lægð á miðvikudag Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Lögreglan lýsir eftir manni Nýjast á mbl.is » Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Næsta lægð á miðvikudag Dóttir Schumachers tjáði sig um slysið í fyrsta sinn Vikumatseðill Guðrúnar er eins og ferðalag á fjarlægar slóðir Nakti maðurinn í glugganum Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þyngir baráttuna við verðbólguna Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg Gul viðvörun: Hvetja fólk til að fara fyrr af stað Mest lesið Í gær Í vikunni Bíll valt á Hellisheiði Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fjórum ferðum þegar aflýst Það magnaðasta sem hægt er að sjá Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Láta alzheimer ekki stoppa sig Nýi garðskálinn glæsilegur Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Næsta lægð á miðvikudag Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Lögreglan lýsir eftir manni