Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: 32-liða úrslitum halda áfram með tveimur grannaslögum

Read Full Article →

Í dag fara fimm leikir fram í 32-liða úrslita í bikarkeppni karla í fótbolta fram. Það verður sýnt beint frá tveimur þeirra. Deginum lýkur svo með Bikarkvöldi þar sem öll mörkin úr viðureignunum 16 verða sýnd. Allar útsendingar dagsins eru á RÚV 2. Leikirnir tveir sem sýndir verða beint eru Grindavík gegn Keflavík klukkan 13:00 . Því næst verður Reykjavíkurslagur KR gegn Valsmönnum klukkan 17:00. Suðurnesjaslagurinn verður í knatthúsi Hauka og KR mun leika heimaleik sinn í Egilshöll. Bikarkvöld hefst svo beint að leik KR og Vals loknum. Aðrar viðureignir dagsins Fjölnir - HK - 13:00 ÍA - Haukar - 13:00 Grótta - Álftanes - 14:15 Leik Vestra og Leiknis hefur verið frestað. Á RÚV.is verður lifandi leikdagsvakt þar sem við fylgjumst með því helsta í leikjum dagsins. Við birtum svo öll mörkin að leikjunum loknum í leikdagsvaktinni og á Facebook síðu íþróttadeildar. Öllum leikjunum verða svo gerð góð skil í Bikarkvöldi þar sem sérfræðingar fara gaumgæfilega yfir málin.

Share this article