Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Varar við hærri verðbólgu og vöxtum vegna stríðsins

Read Full Article →

Jamie Dimon, bankastjóri JPMorgan Chase, varar við að stríðið í Íran gæti ýtt verðbólgu upp og litað fjármálamarkaði ef vextir verða hækkaðir. WSJ greinir frá. Í árlegu bréfi til hluthafa sagði Dimon að það væri hætta á frekari verðsveiflum á olíu og hrávörum á næstu mánuðum sem gætu haft í för með sér viðvarandi verðbólgu og hærra vaxtastig. „Skunkurinn í veislunni - og það gæti gerst árið 2026 - væri að verðbólga myndi aukast hægt og bítandi,“ skrifaði Dimon. „Það eitt og sér gæti valdið því að vextir hækki og eignaverð lækki.“ Hinn 70 ára gamli forstjóri JP Morgan rifjaði upp að miklar hækkanir á olíuverði hafi stuðlað að samdráttarskeiðum á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann bætti þó við að bandaríska hagkerfið væri ekki jafn berskjaldað fyrir slíkum framboðsskellum í dag. Dimon sagði einnig að niðurstaða stríðsátaka milli stórvelda heimsins, þar á meðal stríðanna í Úkraínu og Íran, skipti meira máli en þau fjárhagslegu eða efnahagslegu áhrif sem þau kunna að leiða af sér. „Við ættum ekki að líta fram hjá því hlutverki sem núverandi stjórnvöld í Íran hafa gegnt í að hvetja til hryðjuverka og drepa þúsundir manna, þar á meðal Bandaríkjamenn og marga af eigin þegnum, í gegnum árin,“ sagði Dimon. „Þessari ógn verður að mæta á viðeigandi hátt.“

Share this article