Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði fyrir stundu að bandaríski herinn gæti lagt allt Íran í rúst á einni nóttu. „Allt landið er hægt að leggja í rúst á einni nóttu — og sú nótt gæti verið á morgun,“ sagði hann í upphafi blaðamannafundar í Hvíta húsið sem hófst klukkan 17. Trump hefur gefið Írönum frest til klukkan 20 á morgun að ná samkomulagi. Ella muni Bandaríkjaher og Ísraelsher gera stórfelldar árásir á raforkuver og brýr í landinu. Forsetinn eyddi miklum tíma í að segja frá björgun annars stjórnenda F-15 þotunnar sem skotin var niður yfir Íran og hversu stórkostleg björgunin var. Trump segir að Bandaríkin hefðu hafið rannsókn á því hvernig fréttir um týndan flugmann hefðu lekið til fjölmiðla. „Við erum að leita mjög markvisst að þeim sem lak þessu,“ sagði hann. Trump sagði fréttaflutninginn hafa stofnað björgunaraðgerðinni í Íran í hættu. Trump sagðist ætla að fara fram á að fjölmiðillinn sem fyrst greindi frá björgunaraðgerðinni upplýsti um heimildarmann sinn, en hann nefndi hann ekki á nafn. „Látið það uppi eða farið í fangelsi,“ sagði Trump. „Þeir settu þennan mann í mikla hættu og einnig hundruð þeirra sem fóru inn til að leita hans.“ Bandaríkin sendu 21 flugvél til að bjarga flugmanni F-15 vélarinnar. Í seinni aðgerðinni, þar sem vopnasérfræðingi vélarinnar var bjargað, voru notuð 155 loftför, þar á meðal fjórar sprengjuflugvélar, 64 orrustuþotur, 48 eldsneytisflugvélar og 13 björgunarflugvélar. Pete Hegseth varnarmálaráðherra sagði á fréttamannafundinum að aðgerðir hersins í dag og morgun væru þær umfangsmestu frá upphafi stríðsins. Páskaeggjaleit fór fram í Hvíta húsinu í dag, áður en blaðamannafundurinn hófst. © epa (epa) Íranar höfnuðu fyrr í dag tillögu Bandaríkjamanna um 45 daga vopnahlé og lögðu fram gagntillögu sem Bandaríkjamenn höfnuðu einnig. Bandaríski herinn undirbýr nú mögulegar árásir á orkutengd skotmörk í Íran, að sögn heimildarmanna Wall Street Journal meðal bandarískra embættismanna. Á sama tíma og forsetinn Donald Trump eykur þrýsting sinn á stjórnvöld í Teheran um að opna Hormússund. Hernaðaráætlanagerðarmenn eru að draga fram lista yfir möguleg skotmörk til að veita forsetanum valkosti ef hann ákveður að ráðast á orkuinnviði. Það eru fjölmörg orkutengd skotmörk í Íran sem hafa hernaðarlega tengingu, sagði einn embættismaður. Orkuver getur talist lögmætt hernaðarskotmark ef það hefur verið nýtt í hernaðarlegum tilgangi, sagði annar embættismaður. Til dæmis ef það er notað til að knýja færanlega eldflaugaskotpalla. Frá upphafi stríðsins hefur íranski herinn vísvitandi skotið eldflaugum og sent dróna frá þéttbýlum svæðum þar sem almennir borgarar búa, til dæmis úr almenningsgörðum eða við hlið skóla, að sögn eins embættismanns. Slík háttsemi setur almenning í meiri hættu, þar sem slíkir staðir geta þá orðið lögmæt hernaðarskotmörk.