Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Valsmenn náðu þungu fyrsta höggi gegn KA Jóhann Páll Ástvaldsson Allan Norðberg. Rúv / Mummi Lú Valur og KA mættust í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureign Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld. Valur vann stórsigur, 39-21. Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar en Valsmenn slitu sig alveg frá KA um miðjan fyrri hálfleik. Heimamenn leiddu 17-9 í hálfleik. Gunnar Róbertsson var markahæstur Valsara með átta mörk og Arnór Snær Óskarsson fylgdi eftir með sjö. Jens Bragi Bergþórsson fór fyrir KA mönnum með fimm mörk. Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir Kári HallTíu ára strákur í Kópavogi safnaði sér sjálfur fyrir þrívíddarprentara og hefur nú varla undan við afgreiða pantanir á hólkum undir peningagjafir. Fyrir 45 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Brasilía Lesa til að losna fyrr úr fangelsi Fangar í Brasilíu geta stytt fangelsisvist sína með því að lesa bækur. Einn þeirra sem nýta sér úrræðið er fyrrverandi forseti landsins sem afplánar dóm fyrir valdaránstilraun. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bretland Hyggjast kanna hvort West verði meinað að koma inn í landið Breska ríkisstjórnin hyggst kanna hvort tónlistarmanninum Kanye West verði meinað að koma inn í landið vegna hatursfullra ummæla um gyðinga sem hann hefur látið falla. West á að koma fram á stórri tónlistarhátíð í Lundúnum í júlí. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Menn vilja gjarnan ný nöfn sem enginn hefur notað“ Fyrrverandi prófessor í íslenskum fræðum segir Íslendinga almennt halda í hefðirnar þegar kemur að nafngiftum nýbura. Um 250 eiginnöfn hafa bæst við mannanafnaskrá síðustu tvö ár. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Mikill erill hjá björgunarsveitum í óveðrinu Verkefni björgunarsveita í dag hafa verið margvísleg. Fjöldi ökumanna hefur lent í vanda, foktjón hefur orðið víða og björgunarfólk hefur einnig aðstoðað við sjúkraflutninga. Appelsínugular viðvaranir eru enn í gildi um sunnanvert landið. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Blak Tveir oddaleikir í undanúrslitum Jóhann Páll Ástvaldsson HK konur gátu fagnað í dag. Það er oddaleikur fram undan gegn Aftureldingu. Mummi Lú Völsungur og HK knúðu fram oddaleiki í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki með sigrum. Völsungur vann 3-1 sigur gegn KA á Húsavík og HK svaraði fyrir tap í fyrsta leiknum með öruggum 0-3 sigri á Aftureldingu. HK vann settin 25-22, 25-8 og 25-18. KA vann fyrsta settið 25-23 og voru öll næstu sett afar jöfn. Völsungur vann 21-25, 23-25 og 20-25. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mikill viðbúnaður vegna gruns um vélarbilun í einkaflugvél Neyðarstigi var lýst yfir og samhæfingarstöð almannavarna virkjuð vegna gruns um vélarbilun í einkaflugvél skömmu eftir flugtak frá Akureyrarflugvelli. Vélinni var lent á fimmta tímanum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Fljúga umhverfis tunglið – manneskjur aldrei verið fjær jörðu Geimfarar í Artemis-leiðangrinum fljúga umhverfis tunglið í dag og fara lengra frá jörðu en nokkur maður hefur ferðast áður. Þau verða fyrstu manneskjurnar til að sjá myrku hlið tunglsins með berum augum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hafna vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael Ríkisfjölmiðill Írans segir stjórnvöld hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael. Í svari Írana, sem er í tíu liðum, er lögð áhersla á endanleg lok átakanna. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Viggó færir sig um set til Flensborg Landsliðsmaðurinn í handbolta Viggó Kristjánsson mun ganga til liðs við þýska liðið Flensburg eftir ár. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið Samstarf Rásar 2 og Aldrei fór ég suður framlengt til fimm ára Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður var haldin um páskana og tókst vel. RÚV var á staðnum og sinnti umfjöllun og útsendingum frá hátíðinni. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bretland Þrýstingur eykst á skipuleggjendur Wireless vegna Kanye West Stórir bakhjarlar hafa dregið til baka stuðning við tónlistarhátíð í Lundúnum sem fer fram í sumar vegna tónlistarmannsins Kanye West sem þar kemur fram. Ýmsir baráttuhópar gegn gyðingahatri hafa lýst undrun á bókuninni. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Sjáðu öll mörk bikarsins: KR áfram eftir markaleik Í dag fara fram fimm leikir í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. KR vann 4-2 sigur gegn Val. ÍA vann Hauka 4-0. Grindavík fór áfram í 16-liða úrslit eftir sigur á Keflavík í vítaspyrnukeppni. HK vann Fjölni 3-4 í miklum markaleik. Grótta vann 1-0 sigur gegn Álftanesi. Bikarkvöld er á dagskrá beint eftir leik KR og Valsmanna. Hér má sjá markasúpuna úr öllum leikjum dagsins. SAMANTEKT Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Kvennalandsliðið farið af stað til Færeyja Einar Örn Jónsson Uppfært kl. 13:08 þegar ljóst var að íslenska liðið gæti ferðast. Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum í mikilvægum leik í undankeppni EM 2026 á miðvikudag. Erfiðlega gekk þó að komast til Færeyja vegna veðurhamsins sem gengur yfir landið. Íslenska liðið átti að fljúga með Icelandair til Vága í morgun en því flugi var aflýst. HSÍ náði þá að bóka liðið í vél Atlantic Airways sem fór af stað upp úr hádegi eftir talsverða seinkun. Leikurinn á miðvikudag er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttu við Færeyjar um 2. sæti riðilsins, þar sem Færeyjar og Portúgal eru með 4 stig en Ísland 2. Svartfjallaland er efst með 6 stig. Leikmenn Íslands fagna sigrinum á Svartfjallalandi fyrr í keppninni. RÚV / Mummi Lú Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Leita manneskju vegna gruns um rán og líkamsárás Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lögregla leitar manneskju vegna gruns um rán og líkamsárás í heimahúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að einn hafi fengið skurð á höfuð. Einhverju hafi verið stolið en rannsókn lögreglu sé á frumstigi. Hafnarfjörður. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Lilja Alfreðsdóttir tímabundið starfsmaður þingflokks Framsóknar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins er orðin starfsmaður þingflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið meðan annar starfsmaður er í veikindaleyfi. Lilja segir í samtali við fréttastofu að endurskipulagning flokksins sé í fullum gangi og að verk sé að vinna í þinginu. „Það þarf allar hendur á dekk.“ Hún sé að koma inn sem formaður og aðstoða þingflokkinn. Lilja Alfreðsdóttir er orðin starfsmaður þingflokks Framsóknarflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið. RÚV / Ragnar Visage „Við þurfum að fara af meiri þyngd inn í efnahags- og utanríkismálin.“ Lilja telur reynslu sína sem þingmaður og ráðherra koma að góðum notum. Hún sat á þingi frá 2016 til 2024 og var á þeim tíma ráðherra fjögurra ráðuneyta. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Skuggi J.K. Rowling vofir yfir nýjum þáttum um Harry Potter Fjöldi aðdáenda Harry Potter ætlar ekki að horfa á nýja þætti sem byggðir eru á fyrstu bók J.K. Rowling um galdrastrákinn fræga. Skoðanir hennar á trans fólki misbjóða þeim. Íslenskur aðdáandi ætlar að þekja öll Potter-flúrin sín í mótmælaskyni. 6. apríl 2026 kl. 10:39ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Friðartillögur á borðinu sem gætu tekið gildi í dag Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran eru sögð hafa friðartillögur til skoðunar, sem gætu komið á vopnahléi strax í dag. Sömuleiðis eru drögin sögð kveða á um opnun Hormússunds. 6. apríl 2026 kl. 9:30ÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: 32-liða úrslitum halda áfram með tveimur grannaslögum Í dag halda 32-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta áfram með fimm leikjum. RÚV sýnir beint frá Suðurnesja- og Reykjavíkurslag. 6. apríl 2026 kl. 9:25ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur Íranski byltingarvörðurinn segir yfirmann stofnunarinnar hafa verið felldan í árás Bandaríkjanna og Ísrael. Hótanir ganga á víxl milli Bandaríkjastjórnar og Írana en erindrekar eru sagðir ræða skilmála 45 daga vopnahlés. 6. apríl 2026 kl. 8:15INNLENDAR FRÉTTIR Veður Illviðri um allt land – Rafmagnsleysi vegna eldinga Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir um allt land í dag. Appelsínugul viðvörun verður á öllum suðurhelmingi landsins. Viðvaranir gilda þar til seint í kvöld og þær síðustu falla úr gildi á norðaustanverðu landinu í nótt. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst og miklar raskanir verða á millilandaflugi. Icelandair aflýsti öllu millilandaflugi eftir klukkan 15:00. Fjöldi vega verður á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með skömmum fyrirvara. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna fastra bíla. Bíll fauk út af í snörpum hviðum nálægt Borgarnesi og rúta fauk á hliðina á Kjalarnesi. Rafmagn sló út víða um klukkan 20:00 í kvöld vegna eldingaveðurs. Unnið er að því að koma rafmagni aftur á. FRÉTTAVAKT 6. apríl 2026 kl. 8:00MENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Minnast mannskæðasta eldsvoða 20. aldar: Ólýsanlegur missir sem aldrei var hægt að nefna upphátt Árið 1935 varð eldur laus á jólatrésskemmtun barna í samkomuhúsinu Skildi í Keflavík. Tíu manns létu lífið, þar af sjö börn. Sorgin var lamandi fyrir samfélagið og var atburðurinn lengi hjúpaður þögn. 6. apríl 2026 kl. 7:20MENNING OG DÆGURMÁL Bretland Gosdrykkjaframleiðandi hættir við að fjármagna tónlistarhátíð í Lundúnum — rakið til þátttöku Kanye West Gosdrykkjaframleiðandi verður ekki aðalbakhjarl tónlistarhátíðar í Lundúnum eftir að tíðindi bárust af þátttöku Kanye West sem hefur vakið reiði fyrir gyðingaandúð og fylgispekt við nasisma. Hann hefur beðist afsökunar og kennt veikindum um orð sín. 6. apríl 2026 kl. 7:11INNLENDAR FRÉTTIR Veður „Þetta er kannski meira svona eins og þorraveður“ Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þegar tekið að blása og að hvasst verði í allan d