Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Segir of stuttan fyrirvara á lokun Hvalfjarðarganga

  • What: The Hvalfjardargong tunnel will be closed for several weeks.
  • Impact: The closure affects residents of Akraness and may cause travel disruptions.
Read Full Article →

Hvalfjarðargöngin verða lokuð í kvöld og fram á morgun, og allar nætur mánudaga til föstudaga næstu sjö vikur. Lokunin gildir frá hálf tíu á kvöldin til sex á morgnana. Forseti bæjarstjórnar Akraness segir lokanirnar hafa verið kynntar með of litlum fyrirvara og að þær komi mörgum íbúum sveitarfélagsins illa. Bæjarstjórn Akraness fundaði með Vegagerðinni fyrr í dag. Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness, segist hafa fengið gagnlegar upplýsingar um eðli framkvæmdanna á fundinum. „Við fengum góðar útskýringar á því hvers vegna er nauðsynlegt að loka göngunum alveg. Það er ekki hægt að hafa bara aðra akreinina opna vegna þess búnaðar og viðbúnaðar sem þarf til þess að framkvæma þetta,“ segir Valgarður. Þurfi að koma til móts við vaktavinnufólk Aðspurður segir Valgarður Vegagerðina vera tilbúna til þess að skoða leiðir til þess að koma til móts við vaktavinnufólk, sem gæti fundið einna mest fyrir áhrifum lokananna. Þó hafi engar ákvarðanir verið teknar enn. „Það kom fram á fundinum að Vegagerðin er tilbúin til að skoða það og þá í samtali við þessi stóru vaktavinnufyrirtæki eins og verksmiðjurnar á Grundartanga og sjúkrahúsin að þegar þannig stendur á vaktaskiptum væri hægt að hleypa fólki í gegn til að komast til og frá vinnu þegar aðstæður eru þannig.“ Að mati Valgarðs voru lokanirnar kynntar með skömmum fyrirvara, bæði fyrir sveitarfélögin og fyrir fólk sem reiðir sig á leiðina í gegnum göngin til þess að komast til vinnu. „Vaktavinnufólk hefði getað sett upp plönin sín með ákveðnum hætti hefði það fengið fyrirvara til þess. Það fékk ekki þann fyrirvara og situr uppi í þessari stöðu að það er bara Hvalfjörðurinn eða það að komast ekki til og frá vinnu.“

Share this article