- What: Large health study of Danish women
- Impact: Aims to improve healthcare for women in Denmark
300.000 danskar konur fá á næstu vikum boð í heilsufarskönnun Árósarháskóla. Markmiðið er að kortleggja heilsufar kvenna og verður könnunin sú umfangsmesta í Danmörku til þessa. Könnuninni verður beint að konum á aldrinum 35 til 60 ára. Spurningar verða í 11 mismunandi flokkum sem fjalla um þætti daglegs lífs, líkt og svefn- og lífsstílsvenjur, og fá þátttakendur annan spurningalista fimm árum eftir að þeir svara þeim fyrsta. Stór hluti heilsufarsrannsókna byggir á gögnum um karla, segir í tilkynningu forsvarsmanna könnunarinnar. Niðurstöðunum sé ætlað að tryggja bætta þjónustu við konur í danska heilbrigðiskerfinu. Pexels / cottonbro studio