Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Rafmagn komið aftur á í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi eftir háspennubilun Ragnhildur Helgadóttir Rafmagn er komið aftur á í hluta Vesturbæjar og á Seltjarnarnesi eftir háspennubilun í kvöld. Rafmagni sló út á sjöunda tímanum. Vinnuflokkar voru sendir á vettvang og viðgerð á streng hefur nú verið lokið. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bill Gates ber vitni um kynni sín af Epstein og Maxwell Milljarðamæringurinn Bill Gates mun bera vitni 10. júní fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Hann hefur viðurkennt framhjáhald með tveimur rússneskum konum en neitar því að hafa tekið þátt í afbrotum Epstein. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Verktaki harmar atvikið Hætta skapaðist fyrir íbúa og tjón varð á húsum við Fannborg þegar bárujárnsplötur fuku af framkvæmdasvæði í gær. Sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs segir ábyrgð verktakans að tryggja öryggi. Vinnueftirlitið er með málið til skoðunar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matur Ungir frumkvöðlar þróa bragðbættan harðfisk Hópur nemenda í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hefur búið til harðfisk með sítrónupipar, chili eða hvítlauksbragði. Hugmyndin var að búa til bragðgott snakk sem einnig væri hollt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið á morgun Samtök hernaðarandstæðinga hafa boðað til mótmæla við bandaríska sendiráðið á morgun. í Tilkynningu samtakanna segir að ræðumenn verði kynntir síðar. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Valsmenn jöfnuðu metin og Stólar í góðri stöðu Jóhann Páll Ástvaldsson Kári Jónsson. Mummi Lú Valsmenn jöfnuðu metin gegn Tindastól í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. lur leiddi 39-48 í hálfleik. Valsmenn leiddu með átta stigum þegar tvær mínútur voru eftir en Keflavík hleypti spennu í lokasekúndurnar. Að lokum unnu þeir öruggan 79-87 sigur og jöfnuðu metin í 1-1. Tindastóll er nú í góðri stöðu og leiðir 2-0 gegn ÍR. Heimamenn í Breiðholti byrjðu af krafti og leiddu 25-21 eftir fyrsta leikhluta. Stólarnir vöknuðu þá til lífs og leiddu 39-47 í hálfleik. Tindastóll var skrefi á undan allan seinni hálfleikinn og unnu að lokum átta stiga sigur, 90-98. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti FH vann fyrstu orrustuna í bardaganum um Hafnarfjörð Jóhann Páll Ástvaldsson FH-ingar fagna sigri. Rúv / Mummi Lú FH leiðir 1-0 gegn Haukur í einvígi liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. FH-ingar unnu 27-21 sigur en leikurinn var lengst af afar jafn. Haukar leiddu með fjórum mörkum, 4-8, eftir 17 mínútur. Síðan var leikurinn aftur jafn en Haukar leiddu með einu marki í hálfleik, 11-12. Þegar tíu mínútur voru eftir leiddi FH 19-18. Þá tóku heimamenn nær öll völd á vellinum og unnu að loum sex marka sigur. Ómar Darri Sigurgeirsso var markahæstur með átta mörk hjá FH og Garðar Ingi Sindrason var með sjö mörk auk þriggja stoðsendinga. Hjá Haukum var Freyr Aronsson með sjö mörk og þrjár stoðsendingar. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Viss um að Trump standi ekki við hótanir sínar Fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum telur ólíklegt að Donald Trump Bandaríkjaforseti standi við hótanir sínar frá því fyrr í dag. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Blak Þróttur í úrslit — oddaleikur hjá KA og Aftureldingu Jóhann Páll Ástvaldsson Þróttarar eru komnir í úrslit. Mummi Lú Þróttur fór áfram í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil í blaki karla. Liðið vann öruggan sigur gegn Hamarsmönnum í kvöld, 3-0. Þar með unnu Þróttarar einvígið 2-0. Þeir unnu fyrstu tvær hrinurnar 25-18. Hamarsmenn voru þá komnir með bakið upp við vegg og gáfu allt í þetta. Hrinan fór í upphækkun og Þróttarar höfðu að lokum betur, 25-23. Í leik Aftureldingar og KA unnu gestirnir að norðan í æsispennandi leik, 2-3 í hrinum. Þar með er oddaleikur fram undan. KA komst í 0-2 eftir að fyrstu tvær hrinurnar fóru 21-25 og 19-25. Afturelding jafnaði metin eftir 25-17 og 25-18 hrinur. Í lokahrinunni unnu KA örugglega 10-15. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Bayern München og Arsenal höfðu betur Einar Örn Jónsson 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta hófust í kvöld með tveimur leikjum. Arsenal sótti Sporting heim til Lissabon. Kai Havertz skoraði eina mark leiksins fyrir gestina á 1. mínútu uppbótartíma. Í Madrid var Bayern München í heimsókn hjá Real Madrid. Luiz Diaz og Harry Kane komu Bæjurum í 2-0 áður en Kylian Mbappe minnkaði muninn í 2-1 og þar við sat. Síðari leikir liðanna eru 15. apríl og þá í München og Lundúnum. Á morgun mætast Barcelona og Atletico Madrid annars vegar og PSG og Liverpool hins vegar. Leikmenn Arsenal fagna marki Kai Havertz í Lissabon. AP / Armando Franca Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Við verðum auðvitað að taka þessi orð forsetans alvarlega“ Prófessor í sagnfræði segir að láti Bandaríkjaforseti af hótunum sínum í garð Írans verða sé hann að fremja stríðsglæpi. Taka verði orð forsetans alvarlega. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akraneskaupstaður Skammur fyrirvari og lokanir hafi mikil áhrif á fæðingardeildina Skammur fyrirvari og lokanir í Hvalfjarðargöngum hafa áhrif á störf heilbrigðisstarfsfólks báðum megin ganganna. Deildarstjóri á fæðingardeild HVE býst við röskun fyrir bæði konur sem hyggist fæða á deildinni og starfsfólk. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segir samkomulag um vopnahlé í höfn Samningar um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran eru í höfn eftir að Íranar sendu Bandaríkjamönnum friðartillögu í tíu liðum. Hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagmiðlum í dag hafa vakið heimsathygli. Hann sagði að heil siðmenning yrði þurrkuð út ef Íranar semdu ekki við Bandaríkjamenn. Frestur sem hann gaf til samninga og opnunar Hormússunds var sagður renna út á miðnætti. Samningar náðust fyrir þann tíma. Utanríkisráðherra Íslands sagði fyrr í dag að hótanir Trumps feldu í sér brot á alþjóðalögum, kvaðst hún ekki muna stöðuna verri í alþjóðamálum. Prófessor í sagnfræði sagði hótanirnar settar fram til að neyða Írana að samningaborðinu. Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins sagði aðeins Bandaríkjaforseta vita hvað stendur til að gera þegar frestur Írana til að semja við Bandaríkjamenn rennur út. FRÉTTAVAKT Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Þrjú þúsund eldingar mældust í gær Um þrjú þúsund eldingar mældust í eldingaveðrinu sem gekk yfir sunnanvert landið í gær. Miklar rafmagnstruflanir urðu þegar eldingu laust niður í flutningslínu Landsnets á Suðurlandi. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur „Því miður varð okkur fótaskortur“ Sérfræðingur Vegagerðarinnar harmar stuttan fyrirvara á næturlokun Hvalfjarðarganga næstu vikurnar. Framkvæmdirnar séu tímabærar og umfangsmiklar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Tuttugu íslenskir strandaglópar í Færeyjum Tuttugu Íslendingar sem áttu flug frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur í gær eru fastir í Færeyjum. Farþegi segist hafa fengið litlar upplýsingar frá Icelandair. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Man ekki eftir stöðunni svona alvarlegri Það er ekki fallegur heimur þar sem þeir stóru ætla sér að ráða og hafa sitt í gegn óháð öllu og öllum segir utanríkisráðherra um úrslitakosti Bandaríkjaforseta í stríði við Íran. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Gagnrýnir málflutning Bandaríkjaforseta Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, er gagnrýninn á hótanir Donalds Trump. Hann hefur sagt að heil siðmenning muni deyja í kvöld verði Íranir ekki að óskum Bandaríkjamanna. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Flæðir yfir vegi í Skagafirði - Varað við leysingum næstu daga Vatn flæðir yfir vegi á Norðurlandi og Vegagerðin hefur lokað vegi um Sauðárkróksbraut að Norðurlandsvegi. Vegfarendur eru beðnir að fara með gát víðar um Norðurlandið, þar sem snjór bráðnar hratt. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing eystra Safnað fyrir hljóðfærum í Hvolsskóla Nemendur í Hvolsskóla á Hvolsvelli koma fram á styrktartónleikum á morgun til þess að safna fyrir nýjum hljóðfærum fyrir tónmenntastofu skólans. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sá grjóthrun, snjóflóð og hreindýrahjörð á leið í vinnuna Íbúi á Breiðdalsvík ók fram á snjóflóð, grjóthrun og hreindýrahjörð á leið sinni til vinnu í morgun. Foreldrar barna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla hafa löngum reynt að vekja athygli Vegagerðarinnar á varasömum aðstæðum á veginum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Aðeins Trump viti áformin varðandi Íran Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins segir aðeins Donald Trump Bandaríkjaforseta vita hvað stendur til að gera þegar frestur Írana til að semja við Bandaríkjamenn rennur út. Trump sagði í dag að heil siðmenning myndi líklega deyja í kvöld. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Mikið foktjón á Þórshöfn Mikið tjón varð á Beitingahöllinni á Þórshöfn í nótt í hvassviðri. Þakið fauk af húsinu og olli skemmdum á nærliggjandi húsum. Húsið er talið ónýtt og gæti þurft að rífa það. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Kortleggja heilsufar danskra kvenna Hugrún Hannesdóttir Diego 300.000 danskar konur fá á næstu vikum boð í heilsufarskönnun Árósarháskóla. Markmiðið er að kortleggja heilsufar kvenna og verður könnunin sú umfangsmesta í Danmörku til þessa. Könnuninni verður beint að konum á aldrinum 35 til 60 ára. Spurningar verða í 11 mismunandi flokkum sem fjalla um þætti daglegs lífs, líkt og svefn- og lífsstílsvenjur, og fá þátttakendur annan spurningalista fimm árum eftir að þeir svara þeim fyrsta. Stór hluti heilsufarsrannsókna byggir á gögnum um karla, segir í tilkynningu forsvarsmanna könnunarinnar. Niðurstöðunum sé ætlað að tryggja bætta þjónustu við konur í danska heilbrigðiskerfinu. Pexels / cottonbro studio 7. apríl 2026 kl. 15:27INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir fluttir með þyrlu eftir alvarlegt bílslys við Mývatn Tveir voru