Ísraelar halda áfram árásum sínum á suðurhluta Líbanons þrátt fyrir vopnahléssamkomulagið frá því í gær. Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að vopnahléið nái ekki til stríðsins í Líbanon. Hezbollah-liðar réðust á Ísrael 2. mars eftir að æðsti leiðtogi Írans var ráðinn af dögum í árásum Bandaríkjanna og Ísraels. Síðan þá hafa Ísraelar stundað mikinn landhernað og loftárásir í Líbanon. Ísraelsher hvatti fólk í morgun til að halda sig fjarri tilteknu húsi nærri borginni Tyre í sunnanverðu Líbanon og sagði að orrustan þar væri áfram í fullum gangi. Líbanskir fjölmiðlar greina frá árásum Ísraela í morgun. Líbanski herinn réði fólki frá því að snúa aftur til heimila sinna í sunnanverðu landinu. Hundruð þúsunda lögðu á flótta vegna hernaðar Ísraela. Blaðamaður AFP sá nokkra á leið í suður í morgun. Ísraelar hafa sagt að vopnahléssamkomulagið frá í gær gildi ekki í Líbanon og líbanski herinn hvatt fólk til að forðast þau svæði þar sem Ísraelar hafa sótt fram.