Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.4.2026 | 13:45 ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi ESA telur að kröfur Íslands um viðbótarleyfi og frystingu á fersku og hráu kjöti séu ósamrýmanlegar EES reglum. Ljósmynd/EFTA Setja bókamerki Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi fyrir að hafa ekki fylgt EES-reglum um flutning milli EES-ríkja á dýraafurðum sem eiga uppruna í þriðju ríkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EFTA en þar segir að samkvæmt íslenskum reglum sé ákveðnum dýraafurðum sem hafa þegar verið fluttar inn á EES svæðið gert að uppfylla viðbótarkröfur áður en þær mega koma til landsins, þrátt fyrir að þær hafi uppfyllt allar innflutningskröfur EES. „Aukakröfur Íslands fela í sér að sækja þarf fyrir fram um viðbótarleyfi og færa sönnur fyrir því að ferskt eða hrátt kjöt hafi verið frosið í að minnsta kosti 30 daga áður en það kom til Íslands,“ segir í tilkynningunni. Komust á snoðir um íslensku reglurnar eftir umfjöllun í fjölmiðlum ESA segist hafa komist á snoðir um íslensku reglurnar í apríl 2023 vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um að kjúklingakjöt með uppruna í Úkraínu væri flutt til Íslands frá Hollandi án þess að uppfylla fyrrnefndar viðbótarkröfur. Í kjölfarið tilkynnti ESA íslenska ríkinu að það hygðist opna rannsókn á íslensku reglunum um flutning milli EES-ríkja á dýraafurðum sem ættu uppruna sinn í þriðju ríkjum. EES-samningurinn hefur það að markmiði að tryggja sem best heilbrigði manna og öryggi neytenda, samhliða því að skapa sem mest svigrúm fyrir frjálst flæði vara. Í samræmi við þau markmið er EES-regluverkið tæmandi hvað varðar skilyrði fyrir innflutning, flutning og meðhöndlun dýraafurða frá þriðju ríkjum eftir að þær hafa komið inn á EES-svæðið. „ESA telur að kröfur Íslands um viðbótarleyfi og frystingu á fersku og hráu kjöti séu ósamrýmanlegar EES-reglum, sem heimili ekki ríkjum að setja frekari skilyrði um dýraafurðir sem hafa verið löglega fluttar inn á innri markaðinn,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Fram kemur að formlegt áminningarbréf sé fyrsta skrefið í samningsbrotamáli gegn EES EFTA-ríki og Ísland hafi tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli með málið lengra. Ákvörðun ESA má lesa hér . Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » United ætlar að selja miðjumanninn í sumar Meira en helmings fækkun ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Mikið mannfall í Líbanon Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Verðmætasköpun í ríkisrekstri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frestar árásum á Íran Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » United ætlar að selja miðjumanninn í sumar Meira en helmings fækkun ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Mikið mannfall í Líbanon Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Verðmætasköpun í ríkisrekstri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljósblossar á tunglinu Leiðtogar fagna: „Skref til baka frá brúninni“ Þekkt leikkona styður Grindavík Frestar árásum á Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article