Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Oddviti og sveitarstjóri leiða Framfaralistann í Flóahreppi

Read Full Article →

Árni Eiríksson, teymisstjóri og oddviti sveitarstjórnar, leiðir Framfaralistann í Flóahreppi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu í annað sinn en hann hlaut þrjá kjörna fulltrúa í síðustu kosningum. Í öðru sæti listans er Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi. Það þriðja skipar Walter Fannar Kristjánsson, laganemi og sveitarstjórnarfulltrúi. Í tilkynningu flokksins kemur fram að framkvæmdir innviða hafi verið í brennidepli á liðnu kjörtímabili. Þá hyggjast fulltrúar listans, sem skipað hafa meirihluta sveitarstjórnar undanfarin fjögur ár, byggja á þeim grunni sem fyrir sé hljóti hann áframhaldandi stuðning íbúa.

Share this article