- What: A legal case involving alleged fraud and slander is ongoing.
- Impact: The case involves public figures and legal proceedings.
Innlent | mbl | 8.4.2026 | 17:36 „Öruggt mál að þeir hafa setið um mig“ Vilhjálmur og Ólafur stóðu að hópmálsókn gegn Björgólfi í tengslum við fall Landsbankans. Samsett mynd/mbl.is/Hanna/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Gagnastuldur og njósnir PPP Saksóknari lýsir sig vanhæfan Afhenti gögnin á minnislykli Starfsmaður héraðssaksóknara með stöðu sakbornings „Ætlar hún að treysta áfram á kerfið?“ Héraðssaksóknari til ríkissaksóknara » Fleiri tengdar fréttir Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Ólafur Kristinsson lögmaður hafa stefnt athafnamanninum Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni lögmanni til greiðslu miskabóta vegna ólögmætrar og saknæmrar meingerðar gegn friði, einkalífi og persónu þeirra. Stefnurnar má rekja til skipulagðra og leynilegra aðgerða sem Björgólfur og Birgir eiga að hafa látið framkvæma gegn þeim Vilhjálmi og Ólafi á þriggja mánaða tímabili frá september til desember 2012. Vilhjálmur og Ólafur telja aðgerðirnar hafi verið ólögmætar, framkvæmdar án heimildar og að Björgólfur hafi átt frumkvæði að þeim en Birgir tekið þátt í framkvæmdinni. Þeir krefjast miskabóta, að fjárhæð 66 milljónir króna hvor um sig af annars vegar Björgólfi og hins vegar Birgi, eða samtals 264 milljóna króna, auk vaxta frá desember 2012 og dráttarvaxta frá þeim degi sem málið er höfðað. Þá krefjast þeir málskostnaðar úr hendi bæði Björgólfs og Birgis. Samkvæmt stefnunum, sem mbl.is hefur undir höndum, höfðu aðgerðirnar í för með sér alvarlega röskun á friði, friðhelgi og einkalífi Vilhjálms og Ólafs. Aðgerðirnar voru afhjúpaðar og gerðar opinberar í apríl á síðasta ári með umfjöllun Ríkisútvarpsins í fréttaþættinum Kveik og í fréttaflutningi á Rúv og fleiri miðlum í kjölfarið, m.a. í Morgunblaðinu og á mbl.is. Þar var einkafyrirtækið PPP fengið til að safna upplýsingum um Vilhjálm og Ólaf eftir að þeir stóðu að hópmálsókn gegn Björgólfi í tengslum við fall Landsbankans. Vilhjálmur og Ólafur fengu þá fyrst vitneskju um að þeir hefðu verið fórnarlömb þeirra skipulegu og leynilegu njósnaaðgerða sem stefnan lýtur að, eins og það er orðað í stefnunni. Umsátur og njósnir „Maður á ekki að þurfa að þola svona lagað. Þarna voru náttúrulega verulegir hagsmunir undir. Það var í undirbúningi hópmálsókn. Þeir ætluðu sér að skemma hana en henni lauk samkvæmt fréttatilkynningu með sáttargreiðslu upp á milljarð,“ segir Vilhjálmur Bjarnason í samtali við mbl.is. Vilhjálmur rifjar upp aðgerðir eins og umsátur í Hafnarfirði þegar hann var staddur hjá vini sínum um kvöld og var stöðvaður á heimleiðinni fyrir meintan ölvunarakstur. Hann segist oft hafa farið til vinar síns á kvöldin og telur að í þetta skiptið hafi hann verið eltur. Segist hann bæði hafa rætt við Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, og Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi ríkislögreglustjóra, að honum hafi fundist hann óvenju oft stöðvaður fyrir meintan ölvunarakstur á þessum tíma. Þá rifjar hann upp atvik sem heimildir eru um á ljósmyndum þegar Lúðvík Kristinsson lögreglumaður situr á næsta borði við Vilhjálm í morgunverði á Hótel Sögu. „Það sést í hvirfilinn á mér og vangann á vini mínum sem bjó úti í Ameríku á þessum tíma og smalaði mönnum til sín í morgunmat á Sögu. Svo er lögregluþjónninn þarna í baksýn. Það er alveg öruggt mál að þeir hafa setið um mig hérna heima og elt mig vestur á Sögu. Það gat enginn vitað að ég færi í morgunmat á Sögu klukkan átta á þessum tiltekna degi.“ Vilhjálmur bendir einnig á að aðgerðirnar hafi átt sér stað dagana fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann var í kjöri. Frétt af mbl.is Saksóknari lýsir sig vanhæfan Birgir verði sviptur réttindum Stefnufjárhæðin er ákvörðuð á grundvelli innheimtureiknings PPP sem nam 33 milljónum króna. Í stefnunni segir að löggjafinn hafi í fjölmörgum tilvikum mótað lagareglu sem kveður á um að sekt fyrir tiltekið brot skuli nema tvöfaldri og allt að tífaldri fjárhæð brotsins. Vilhjálmur og Ólafur taka mið af þessari stefnumótun og krefjast tvöfaldrar fjárhæðar innheimtureiknings úr hendi Björgólfs annars vegar og Birgis hins vegar. Spurður hvort ekki hafi verið freistandi að krefjast meira en tvöfaldrar fjárhæðar í ljósi þess að efnuðum mönnum er stefnt segir Vilhjálmur að þeir Ólafur hefðu viljað hafa dómkröfur á nótum sem dómarar skilja. Þá segir hann að ekki hafi þjónað neinum tilgangi að bíða með málsókn á hendur Björgólfi og Birgi þar sem enn standi yfir lögreglurannsókn á málinu. „Við vildum bara láta þetta vaða. Ég mun jafnframt krefjast þess að lögmaðurinn, Birgir Már Ragnarsson, verði sviptur réttindum og það þarf að gerast innan árs eftir að okkur urðu brotin ljós. Þetta er allt saman brot á siðareglum lögmanna.“ Frétt af mbl.is Björgólfur sagður hafa fjármagnað njósnir á hluthöfum Tengdar fréttir Gagnastuldur og njósnir PPP Saksóknari lýsir sig vanhæfan Afhenti gögnin á minnislykli Starfsmaður héraðssaksóknara með stöðu sakbornings „Ætlar hún að treysta áfram á kerfið?“ Héraðssaksóknari til ríkissaksóknara » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sex handteknir fyrir þjófnað í Kópavogi „Öruggt mál að þeir hafa setið um mig“ Þessi störf munu lifa af gervigreindina. Sá launahæsti í sögunni Fagna sakfellingu Smáríkisins fyrir héraðsdómi Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Stórbrotið útsýni Artemis-áhafnarinnar Íranar stöðva umferð um Hormússund á ný Leiðtogar fagna: „Skref til baka frá brúninni“ Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Trump áður bakkað um leið og mótmæli eru skipulögð Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Sex handteknir fyrir þjófnað í Kópavogi „Öruggt mál að þeir hafa setið um mig“ Þessi störf munu lifa af gervigreindina. Sá launahæsti í sögunni Fagna sakfellingu Smáríkisins fyrir héraðsdómi Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit „Orð eru til alls fyrst“ Hverju er Trump að hóta? Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Trump áður bakkað um leið og mótmæli eru skipulögð Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón