Samtök hernaðarrandstæðinga efndu til mótmæla við bandaríska sendiráðið í dag, tugir tóku þátt í mótmælunum. Þátttakendur kröfðust þess að íslensk stjórnvöld slíti samstarfi við Bandaríkin vegna stríðsreksturs. Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, segir að hótanir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafi verið kveikjan að mótmælunum. „Þessi ógeðslegu ummæli Trumps um að hóta tortímingu heillar siðmenningar. Maður sá að þetta sjokkeraði fólk og fólk sem jafnvel var kannski orðið svolítið samdauna þessum sífelldu fréttum sem við erum að fá af hryllingnum, hótununum og orðræðu Trumps.“ Til orðaskaks kom milli mótmælenda og stuðningsmanna Írans og Bandaríkjanna, sem mættu einnig á mótmælin og veifuðu fánum landanna tveggja. „Þjóðin mín kemur ykkur ekkert við.“ Guttormur segir að ítrasta krafa mótmælenda sé sú að Ísland segi sig úr NATO, lágmarkskrafan sé þó sú að einhver mótmæli verði. „Að við gerum eitthvað til að sýna að við tökum ekki þátt í þessu.“ Tugir tóku þátt í mótmælum Samtaka hernaðarandstæðinga við bandaríska sendiráðið í dag. Þeir kröfðust þess að íslensk stjórnvöld slíti samstarfi við Bandaríkin vegna stríðsreksturs.