Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Laufey og Sigfríð til Novum

Read Full Article →

Laufey Sara Malmquist og Sigfríð Elín Þorvaldsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu og starfa nú alls átta lögmenn undir merkjum Novum sem hóf starfsemi sína árið 2019. Sigfríð Elín lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2024. Hún starfaði áður hjá Landsrétti sem aðstoðarmaður dómara árin 2022-2026 en þar áður starfaði hún meðal annars sem fulltrúi hjá LOGOS lögmannsþjónustu og hefur einnig sinnt stöðu framkvæmdastjóra bókaútgáfunnar Codex. Sjá einnig Telma Sif í eigendahóp Novum Helstu sérsvið Sigfríðar eru skaðabóta-, vátrygginga-, eigna-, vinnu-, kröfu- og félagaréttur. Laufey lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2025. Hún starfaði áður hjá LOGOS lögmannsþjónustu bæði sem laganemi og fulltrúi. Helstu sérsvið Laufeyjar eru skaðabóta-, vátrygginga-, stjórnsýslu-, fasteignakaupa- og leiguréttur ásamt skipulagsmálum. „Það gleður okkur afar mikið að fá Laufeyju og Sigfríði til liðs við stofuna. Þær smellpassa inn í þá þjónustumenningu sem Novum hefur lagt áherslu á gagnvart sínum viðskiptavinum og munu styrkja hana enn frekar,“ segir Ólafur Lúther Einarsson lögmaður og framkvæmdastjóri Novum.

Share this article