Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kona handtekin í tengslum við birtingu falskrar dánartilkynningar

Read Full Article →

Kona sem hefur verið sökuð um að fá birta falska andlátstilkynningu í Morgunblaðinu í dag var handtekin í morgun. Lögreglan ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir henni síðar í dag. Fjöldi fólks hefur kært konuna fyrir umsáturseinelti. Lögreglan hefur rannsakað þær ásakanir síðustu ár og stendur sú rannsókn enn yfir. Í morgun birtist andlátstilkynning á minningarsíðum Morgunblaðsins þar sem tilkynnt var um andlát Sölva Guðmundssonar. Sú tilkynning reyndist uppspuni frá rótum, líkt og hann greindi frá á samfélagsmiðlum sínum. „Kæru ættingjar og vinir þið sem hafið verið að senda skilaboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi.“ Sölvi gagnrýndi í færslunni að lögregla hefði lítið aðhafst og sagði: „Þetta er ekkert grín að eiga við svona andskotans viðbjóði meðan lögvaldið klórar sér í rassgatinu.“ Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti í samtali við fréttastofu að manneskja hafi verið handtekin vegna dánartilkynningarinnar. Lögreglan á Suðurnesjum birti einnig tilkynningu um handtökuna í dag. Þar sagði að aðili hefði verið handtekinn í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu í morgun. „Aðilinn hefur áður verið grunaður um og sætt rannsókn vegna fjölda annarra tilvika umsáturseineltis undanfarin ár og er þeim málum ekki lokið. Lögregla hyggst fara með kröfu um gæsluvarðhald á hendur aðilanum síðar í dag.“ Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article