Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ellefu flokkar skiluðu framboðslistum í Reykjavík

Read Full Article →

Fulltrúar ellefu framboða hafa skilað inn listum fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Þar af eru þrjú ný framboð sem ekki buðu fram fyrir fjórum árum: Okkar borg, Vinstrið og Góðan daginn. Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis, segir móttöku framboðslista í Ráðhúsi Reykjavíkur hafa gengið vel fyrir sig. „Við höfðum tvo fundi á miðvikudag og í dag til að taka við framboðum. Við tókum á móti ellefu framboðum og nú förum við bara yfir þau og athugum hvort það séu einhver atriði sem þarf að laga eða finna út úr. Svo munum við veita fresti ef það er eitthvað sem upp á vantar og úrskurða um gildi framboða á morgun,“ segir Eva. Ellefta framboðið barst rétt fyrir tólf Um klukkan hálf tólf í dag höfðu framboðslistar tíu flokka borist kjörstjórn. Stuttu áður en klukkan sló tólf á og framboðsfresturinn rann út bættist síðan ellefta framboðið við. Ellefta framboðið nefnist Góðan daginn framboðið . „Við höfðum frétt af þessu aðeins í morgun þannig að þetta kom okkur ekki alveg í opna skjöldu,“ segir Eva. Hún segir að næstu daga verði farið yfir ýmis formsatriði er varða yfirlýsingar frambjóðenda, fjölda meðmælenda og hvort farið sé eftir þeirri reglu að hver og einn megi aðeins mæla með einu framboði. „Þannig að þetta eru svona formsatriði sem við þurfum að fara í og þá biðjum við um að það sé lagað ef upp á vantar.“

Share this article