Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skammtímaaðgerðir kosta ríkissjóð þrjá og hálfan milljarð

Read Full Article →

Skammtímaaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag kosta þrjá og hálfan milljarð króna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist viss um að aðgerðirnar muni hjálpa til og muni hafa mælanleg áhrif. Þá vonist hún einnig til að þær hafi áhrif á verðbólguvæntingar. Hún gerir ráð fyrir því að aðgerðirnar þýði um 10% lækkun á verði á dælunni fyrir neytendur. Ríkisstjórnin sé meðvituð um að hætta sé á að hækkanir á eldsneyti hafi áhrif á allt samfélagið og leiði til frekari verðhækkana. „Við erum auðvitað í stöðugu aðhaldi,“ segir hún. „Við höfum verið að innleiða hagræðingaraðgerðir og við hvikum hvergi frá þeim.“ Kristrún undirstrikar einnig að ekki sé um varanleg ófjármögnuð útgjöld að ræða heldur tímabundnar aðgerðir. „Þetta eru fjórir mánuðir þar sem við erum að kippa í bremsuna og halda þá vonandi aftur af frekari útgjöldum,“ segir hún. Þrjár skammtímaaðgerðir ríkisstjórnarinnar Lækkun á dælu: Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dælu Vöktun á verðlagningu: Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert. Með því að styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir til að hafa sérstakt eftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu. Fjölgun hleðslustöðva um land allt: Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið. Lagafrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu verður lagt fram á Alþingi í næstu viku. Fjölgun hleðslustöðva verður styrkt með framlögum úr loftslags- og orkusjóði sem verða kynnt á næstu dögum. Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og renna út 31. ágúst. Einblína á rót vandans með lækkun á eldsneyti Önnur Evrópuríki líkt og Svíþjóð gripu til þess að lækka virðisaukaskatt á matvöru. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafði áður sagt að slíkt kæmi ekki til greina. „Það er miklu breiðtækari og breiðvirkari aðgerð en þetta,“ segir Kristrún sem segir að með þessu sé verið að einblína á rót vandans með lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti. Við vitum að það er ytra áfall, við vitum að það er styrjöld sem hefur verið í gangi og vonandi lýkur henni en það er mikil óvissa, segir hún. Verðhækkanir á olíu séu að leka út í allar verðbólguvæntingar og hafi óhóflega áhrif. Verðhækkanir megi ekki vera óumflýjanlegar Önnur aðgerð ríkisstjórnarinnar verður að styrkja verðlagseftirlit ASÍ. „Þetta er í rauninni tvíþætt vöktun á verðlagi,“ segir Kristrún. „Það er annars vegar lagaákvæði sem mun vera í þessu vasksfrumvarpi sem býr til ákveðnar heimildir fyrir atvinnuvegaráðherra til að setja reglugerð sem skyldar fyrirtækin í raun til að skila þessari verðlækkun áfram til neytenda.“ Kristrún segist þó hafa fulla trú á því að ekki komi til þess að reglugerðinni verði breytt. „Þetta skiptir hins vegar máli upp á trúverðugleika aðgerðarinnar,“ segir hún. Verið sé að biðla til samfélagsins alls að vera vakandi fyrir verðhækkunum, að fyrirtæki fari ekki í miklar verðhækkanir og að neytendur séu vakandi fyrir þeim. „Við megum ekki tala okkur upp í það að verðhækkanir séu óumflýjanlegar,“ segir hún. „Við þurfum að vera vökul og fylgjast með verðlagningu.“

Share this article