Kosið verður til sveitarstjórna í Árneshreppi og Kaldrananeshreppi sitt í hvoru lagi þrátt fyrir að sameining sveitarfélaganna hafi verið samþykkt fyrir stuttu. Einn listi hefur skilað inn framboði í Árneshreppi. Naumt samþykki fyrir sameiningu í Árneshreppi Íbúar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps samþykktu sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningum sem lauk 28. mars. Í Kaldrananeshreppi var sameiningin samþykkt með 73% atkvæða. Í Árneshreppi var hlutfall þeirra sem samþykktu sameininguna ívið lægra eða 56%. Fyrir kosningar hafði hópur fólks lýst sig tilbúinn að bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga ef sameiningu yrði hafnað. Í Árneshreppi er löng hefð fyrir óhlutbundnum kosningum, betur þekktum sem persónukjöri. Staðfesting sameiningar dregst vegna kæru Undirbúningsstjórn sameinaðs sveitarfélags hafði lagt til við Innviðaráðuneytið að sameiningin tæki gildi 31. maí 2026 í kjölfar kosninga til sveitarstjórnar 16. maí. Ráðuneytinu barst kæra vegna framkvæmdar kosninga í Árneshreppi áður en kærufrestur rann út 4. apríl. Kæran sem Fréttastofa hefur undir höndum snýr að því að tillagan hafi ekki verið kynnt með 20 daga fyrirvara, annmarka á stjórnsýslu í aðdraganda kosninga, og að aðgengi að kjörstað hafi verið takmarkað. Í kærunni segir: „Fyrir liggur að ekki var viðvera kjörstjórnar eða fulltrúa á kjörstað stóran hluta þess tíma sem auglýst var að hægt yrði að kjósa. Þá var vegur ekki opnaður innan kjördæmisins á auglýstum kjördögum auk þess sem vegur inn í sveitina var ófær allan þann tíma sem kosning stóð yfir utan 25. mars.“ Innviðaráðuneytið staðfestir að niðurstaða íbúakosningarinnar hefur ekki vevrið staðfest. Ekki er unnt að staðfesta kosninguna meðan kærumálið er til umfjöllunar hjáráðuneytinu. Sveitarfélögin verða því áfram tvö við sveitarstjórnarkosningar í maí. Framtíð Árneshrepps býður fram Hópnum sem hugði á framboð bárust þær fréttir í morgun að kosið yrði sitt í hvoru sveitarfélaginu. Stuttu fyrir hádegi í dag, áður en framboðsfrestur rann út, barst Árneshreppi tilkynning um framboðslistann Framtíð Árneshrepps. Listann skipa: Sigrún Sverrisdóttir, leiðbeinandi og bóndi Þorgerður Lilja Björnsdóttir, forstöðumaður Róbert Hlífar Ingólfsson, bóndi Davíð Már Bjarnason, bóndi Thomas Elguezabal, verslunarstjóri Pétur Freyr Ragnarsson, sjómaður Joanna Zofia Wilczyńska, landpóstur Kristín Guðmundsdóttir, arkitekt Björn Guðmundur Torfason, bóndi Guðjón Stefán Kristinsson, skrúðgarðyrkjufræðingur Þar sem aðeins einn listi býður fram er framboðsfrestur framlengdur um tvo daga. Ef enginn annar listi býður fram eru þau í framboði sjálfkjörinn og kosningar eru ekki haldnar í sveitarfélaginu.