Security News

Cybersecurity news aggregator

🔄
LOW Updates Viðskiptablaðið

Styðja ekki lengur við eldri rafbækur

  • What: Amazon stops supporting older Kindle devices.
  • Impact: Users of older Kindle models will no longer receive updates or access to new books.
Read Full Article →

Amazon hefur tilkynnt að fyrirtækið muni ekki lengur styðja við eldri Kindle-spjaldtölvur. Á vef BBC er vitnað í tölvupóst frá bandaríska tæknirisanum sem segir að rafbækur sem komu á markað árið 2012 eða fyrr muni ekki lengur fá uppfærslur. Breytingarnar taka gildi 20. maí nk. og munu þá eigendur eldri spjaldtölva ekki lengur geta keypt, fengið lánaðar eða hlaðið niður nýjum rafbókum í gegnum Kindle-verslun Amazon. Fjölmargir viðskiptavinir hafa þegar lýst yfir óánægju sinni með ákvörðun Amazon en breytingarnar ná yfir fyrstu kynslóða Kindle-spjaldtölva eins og Kindle Touch og fyrri tegunda Kindle Fire. Einn notandi segir að Kindle Touch-spjaldtölvan, sem hann hefur notað síðan 2013, virki enn fullkomlega en sé nú skyndilega orðin ónothæf. Annar benti á að Kindle sé í eðli sínu einfalt tæki sem þurfi á fáum uppfærslum að halda og spyr hvað liggi á bak við ákvörðunina.

Share this article