Innlent | Morgunblaðið | 11.4.2026 | 6:57 Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu, sem landskjörstjórn finnur margt að. mbl.is/Karítas Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Afstaðan í andstöðu við kjósendur Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ragnar Þór telur skynsamlegt að sjá hvað er í boði » Fleiri tengdar fréttir Alþingi 16% atkvæða myndu falla dauð Hádegismatur á þúsundkall Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Þórunn heimsækir Pólland og Úkraínu Vilja bann við því að hylja andlit á almannafæri » Fleiri tengdar fréttir Landskjörstjórn gerir verulegar og þungorðar athugasemdir við þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Athugasemdir eru gerðar við kosningar að sumarlagi, en aðallega er þó fundið að því að spurningin á kjörseðlinum feli í sér umdeildar forsendur og sé því í eðli sínu leiðandi. Þetta kemur fram í umsögn landskjörstjórnar til utanríkismálanefndar Alþingis, sem lögð var inn í gær. Þar er bæði fjallað um framkvæmd kosningar og ekki síst orðalag þeirrar spurningar sem leggja á fyrir kjósendur, en einnig þá svarkosti sem utanríkisráðherra vill hafa á seðlinum. Varað við sumarkosningu Landskjörstjórn telur að atkvæðagreiðsla 29. ágúst sé annmörkum háð. Óhjákvæmilegt sé að undirbúningur kosninganna fari fram á aðalsumarleyfistíma, sem ekki auðveldi framkvæmdina, m.a. vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu, en mönnun kjörstaða kunni einnig að valda vanda. Lögum samkvæmt megi atkvæðagreiðsla fara fram í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt þingsályktunar. Hún geti ekki farið fram á tilsettum degi verði hún samþykkt eftir 29. maí. Eins sé óráðlegt að hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrr en kjörskrá liggi fyrir. Það sé þó ekki aðeins framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar á þessum tíma, sem geti reynst varasöm, því að kjósendur þurfi einnig að hafa ráðrúm til þess að móta upplýsta afstöðu og vera ljós rök með og á móti. Meingallað orðalag Þyngst vegur þó gagnrýni landskjörstjórnar á orðalag spurningarinnar sjálfrar, en í tillögu Þorgerðar Katrínar er gert ráð fyrir að spurt verði hvort „halda eigi áfram viðræðum“ um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Að mati landskjörstjórnar felur orðalagið í sér umdeilda forsendu, þá að viðræðunum hafi ekki verið slitið 2013 og nú eigi aðeins að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. „Ekki verður litið fram hjá þeirri staðreynd að í samfélaginu eru uppi skiptar skoðanir á því hvort aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi verið dregin til baka eða ekki,“ segir í umsögn landskjörstjórnar, en þess vegna sé orðalagið til þess fallið að vekja tortryggni um að spurningin hafi áhrif á afstöðu kjósenda. Það gæti orðið til þess að sumir kjósendur, sem t.d. eru hlynntir aðild en telja að aðildarviðræðunum hafi verið slitið, ættu erfitt með að svara. Landskjörstjórn telur þó ekki nóg með að spurningin sé gölluð, því svarkostirnir séu það líka. Lög geri ráð fyrir að þeir skuli vera skýrir og fyrirvaralausir, aðeins „já“ eða „nei“. Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra mæli hins vegar fyrir um að svör verði „Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ og „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Svörin innberi því einnig hina umdeildu forsendu. Viðmið Feneyjanefndar Í umsögninni er vísað til alþjóðlegra viðmiða, einkum leiðbeininga Feneyjanefndar Evrópuráðsins, þar sem lögð er rík áhersla á að spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslum séu skýrar og hlutlausar en hvorki leiðandi né villandi. Kjósendum verði að vera áhrif svaranna ljós. Landskjörstjórn telur að fyrirliggjandi orðalag uppfylli þau skilyrði ekki með fullnægjandi hætti og geti vakið tortryggni um að framsetningin hafi áhrif á niðurstöðu. Í ljósi þessa leggur landskjörstjórn til að spurningin verði orðuð með opnari hætti, þannig að hún feli ekki í sér afstöðu til þess hvort viðræðum hafi verið slitið eða ekki. Megintilgangur þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé að leita leiðsagnar þjóðarinnar; spurningin verði því að vera hlutlaus. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Afstaðan í andstöðu við kjósendur Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ragnar Þór telur skynsamlegt að sjá hvað er í boði » Fleiri tengdar fréttir Alþingi 16% atkvæða myndu falla dauð Hádegismatur á þúsundkall Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Þórunn heimsækir Pólland og Úkraínu Vilja bann við því að hylja andlit á almannafæri » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Listin frjáls ef mannkynið er frjálst Þetta borðar Katherine LaNasa á ströndinni á Jamaíku Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður við endurreisn óljós Geimfarið lenti án vandræða Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Mest lesið Í gær Í vikunni Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Snæfellsbær framlengir framboðsfrest Stjórn Sólheima segir upp þjónustusamning Sjö fá 19 milljónir Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Kort sýnir vegakerfi í lamasessi Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Listin frjáls ef mannkynið er frjálst Þetta borðar Katherine LaNasa á ströndinni á Jamaíku Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Geimfarið lenti án vandræða „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Snæfellsbær framlengir framboðsfrest Stjórn Sólheima segir upp þjónustusamning Sjö fá 19 milljónir Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Kort sýnir vegakerfi í lamasessi Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu