Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Lögreglan á Akureyri rannsakar stórfellda líkamsárás

  • What: Large-scale physical assault in a home under investigation
  • Impact: A man was stabbed and treated in hospital, no life-threatening injuries
Read Full Article →

Stórfelld líkamsárás í heimahúsi á Akureyri er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Til rannsóknar er hvort um tilraun til manndráps hafi verið að ræða. Tveir hafa verið handteknir grunaðir um aðild að málinu og hafa þeir verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Lögreglan greinir frá málinu í færslu á Facebook. Maður leitaði á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri aðfaranótt föstudagsins 10. apríl. Hann bar stunguáverka og undirgekkst skurðaðgerð. Hann er ekki í lífshættu „Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og naut aðstoðar tæknideildar LRH við vettvangsrannsókn og sérsveitar RLS við handtökur,“ segir í færslu lögreglunnar.

Share this article