Innlent | mbl | 11.4.2026 | 17:54 | Uppfært 18:16 Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Flugvélin í að því er virðist um hundrað metra flughæð yfir bænum. Skjáskot Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Icelandair lítur lágflugið sem flugstjóri félagsins flaug yfir Vestmannaeyjabæ í dag mjög alvarlegum augum. Þetta segir Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, í samtali við mbl.is. Linda segir vélina hafa verið í áætlunarflugi frá Frankfurt. Flugstjórinn hafi verið í sínu síðasta flugi og hann hafi farið í útsýnisflug yfir æskuslóðir sínar í Vestmannaeyjum án vitneskju eða leyfis frá félaginu. „Þetta er bara grafalvarlegt mál sem að við munum taka til skoðunar hér innanhúss,“ segir hún. „Það er bara þannig í flugi að það er allt mjög niðurnjörvað í verkferlum, tékklistum og annað slíkt, það sem við gerum í venjulegu farþegaflugi og þetta fellur ekki innan þess ramma.“ „Þetta er alls ekki vani“ Linda segir nákvæma flughæð ekki enn liggja fyrir en gögnin verði vandlega skoðuð við rannsókn félagsins á atvikinu. Aðspurð segir hún ekki hefð fyrir slíku þegar flugstjórar félagsins fljúga sín síðustu flug. „Þetta hefur tíðkast í gegnum tíðina en þetta er alls ekki vani og alls ekki eitthvað sem við hefðum gefið leyfi fyrir,“ segir hún. Flugmaðurinn beri líka ábyrgð Linda segist búast við því að farþegar hafi verið upplýstir um útsýnisflugið en hún geti ekki fullyrt það enn þá. Spurð út í ábyrgð flugmannsins svarar Linda að hann beri auðvitað líka ábyrgð. „Auðvitað gerir hann það en það er flugstjórinn sem hefur lokaákvörðunarvald um borð í flugvél samkvæmt lögum og reglum í flugi.“ Þá geti hún ekki tjáð sig að svo stöddu um afleiðingarnar fyrir flugstjórann, sem er að hætta hjá félaginu, eða flugmanninn. Málið sé sem fyrr segir til skoðunar hjá félaginu. Frétt af mbl.is Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Fréttin hefur verið uppfærð. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll – ÍR kl. 19, bein lýsing „Fann að mig vantaði að fá meiri útrás líkamlega“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fyrsta sinn hjá Liverpool síðan 1995 Handtekinn fyrir meint kynferðisbrot Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Styrkir samtökin um 25 milljónir „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Gul viðvörun vegna norðaustan storms eða roks Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Tindastóll – ÍR kl. 19, bein lýsing „Fann að mig vantaði að fá meiri útrás líkamlega“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fyrsta sinn hjá Liverpool síðan 1995 Handtekinn fyrir meint kynferðisbrot Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Geimfarið lenti án vandræða Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Gul viðvörun vegna norðaustan storms eða roks Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi