Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framboðsfrestur framlengdur í Vesturbyggð

Read Full Article →

Aðeins einn framboðslisti barst í Vesturbyggð áður en framboðsfresti lauk á hádegi í gær, 10. apríl. Frestur til að skila inn framboðslistum hefur því verið framlengdur til klukkan 12 á hádegi á morgun, sunnudaginn 12. apríl. Frá þessu er greint á vefsíðu sveitarfélagsins. „Yfirkjörstjórn Vesturbyggðar tekur á móti framboðslistum í ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75 á Patreksfirði milli kl. 11.00 og 12.00 sunnudaginn 12.04.2026,“ segir þar enn fremur. Vestfirski fréttamiðillinn Bæjarins besta greinir frá því að Hlynur Ársælsson, framkvæmdastjóri Nordic Fish Leather á Tálknafirði, hyggist leiða lista óháðra í Vesturbuggð. Í öðru sæti verður Friðbjörg Matthíasdóttir bæjarfulltrúi. Friðbjörg staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Framboðið hyggst leggja fram lista á morgun. Friðbjörg segir framboðið leggja áherslu á að bæta innviði og raföryggi. „Það er skýrt eftir veturinn að við þurfum úrbætur í raforkumálum á svæðinu,“ segir hún.

Share this article