Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sendinefndir ræða saman augliti til auglitis

Read Full Article →

Þríhliða friðarviðræður Bandaríkjamanna, Írana og Pakistana hafa farið fram í Islamabad, höfuðborg Pakistans í dag. Þar sitja samninganefndir ríkjanna á fundum augliti til auglitis til að leita leiða til að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum. Búist hafði verið við því að samninganefndir Bandaríkjanna og Írans sætu hvor í sínu herberginu og milligöngumaður frá Pakistan miðlaði málum. Svo hátt settir embættismenn frá ríkjunum tveimur hafa ekki ræðst við með þessum beina hætti frá því íslömsku byltingunni árið 1979. Siglt um Hormússund Donald Trump hefur á meðan viðræðurnar eiga sér stað haldið því fram á Truth Social að Bandaríkin hafi gjöreytt her Írans, þar með talið sjó- og flugher þeirra. Hann heldur því fram að Hormússund muni senn opna. Tvö bandarísk herskip sigldu um Hormússund, að sögn bandaríska hersins, fyrr í dag. Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, staðfesti þetta síðan á samfélagsmiðlinum X. Tilgangurinn er sagður að fjarlægja tundurdufl sem Íran hafi komið fyrir. Unnið sé að því að tryggja örugga umferð flutningaskipa um sundið. Íran hefur þó áður hótað Bandaríkjamönnum því að ráðist verði á skip þeirra sé þeim siglt inn í sundið. Varaforseti og tengdasonur forseta í bandarísku sendinefndinni Í bandarísku sendinefndinni eru meðal annara varaforsetinn JD Vance, Steve Witkoff, sérstakur erindreki bandaríkjastjórnar og Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta. Á áttunda tug eru í írönsku sendinefndinni sem forseti þingsins og utanríkisráðherra landsins fara fyrir. Fréttastofa AFP hefur eftir Shebas Sharif, forsætisráðherra Pakistans, að hann fagni áformum beggja sendinefnda að eiga uppbyggilegt samtal. Hann voni að fundirnir muni leiða til varanlegs friðar á svæðinu.

Share this article