Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfir 500 handteknir í London

Read Full Article →

Alls voru 523 stuðningsmenn Palestine Action samtakanna á aldrinum 18–87 ára handteknir af lögreglu í samstöðumótmælum á Trafalgar-torgi í London í gær. Samtökin voru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í júlí og varðar það allt að 14 ára fangelsi að tilheyra eða styðja samtökin. Mótmælendur báru skilti sem lýstu yfir stuðningi við samtökin sem gaf lögreglu tilefni til að handtaka fólkið. Dómstóll í London kvað upp dóm í febrúar um að það hefði verið ólöglegt af stjórnvöldum að skilgreina Palestine Action sem hryðjuverkasamtök. Lögregla gerði hlé á aðgerðum gegn samtökunum eftir dóminn og þar til í mars þegar lögregla tilkynnti að aðgerðum gegn samtökunum yrði haldið áfram. Stjórnvöld ætla að áfrýja úrskurðinum. Alls hafa um 3.000 stuðningsmenn samtakanna verðið handteknir síðan bannið gegn þeim tók gildi. Hundruð stuðningsmanna bíða ákærur. Mannréttindasamtökin Amnesty International í Bretlandi hafa fordæmt handtökurnar og segja þær enn eitt högg fyrir borgaraleg réttindi í Bretlandi.

Share this article