Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnvöld í Pakistan halda áfram að reyna að miðla málum

Read Full Article →

Utanríkisráðherra Pakistan, Ishaq Dar, segir það áríðandi að Bandaríkin og Íran haldi áfram að virða vopnahléið þrátt fyrir að samningaviðræður hafi runnið út í sandinn í nótt. Þetta sagði hann í stuttri tilkynningu á ríkisfjölmiðli Pakistan í dag. Hann sagði að stjórnvöld í Pakistan væru tilbúin til að halda áfram að reyna að miðla málum og koma á viðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baqaei, sagði í tilkynningu á íranska ríkisfjölmiðlinum IRIB að enginn hefði búist við að samkomulag myndi nást við Bandaríkin í einni samningalotu. Hann sagði að stjórnvöld hefðu trú á því að samskiptum verði haldið áfram milli Írans og Pakistans og við aðrar bandaþjóðir í þessum heimshluta. Samninganefndir Írans og Bandaríkjanna funduðu í 21 klukkustund með milligöngu stjórnvalda í Islamabad í Pakistan í gær. J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna yfirgaf Pakistan í morgun og hélt heim á leið. Hann sagði í viðtali við fjölmiðla að Bandaríkin hefðu lagt fram sitt besta lokatilboð og það ætti eftir að koma í ljós hvort Íranar samþykktu það.

Share this article