Ísland tekur á móti Portúgal á Ásvöllum klukkan fjögur í dag í undankeppni EM kvenna í handbolta. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV þar sem upphitun hefst hálf fjögur. 15:30 Stofan [RÚV] 16:00 Ísland - Portúgal [RÚV] Þetta er lokaleikurinn í undanriðlinum og er íslenska liðið sem stendur neðst í riðlinum með 2 stig. Portúgal er með 4 og svo eru Færeyjar og Svartfjallaland örugg í efstu tveimur sætunum. Kvennalandslið Íslands í handbolta leikur mikilvægasta leik sinn í langan tíma kl. 16:00 í dag þegar liðið tekur á móti Portúgal á Ásvöllum. Ísland þarf tveggja marka sigur til að komast áfram í lokakeppni Evrópumótsins sem er í desember. Stígandi í portúgalska liðinu Tvö lið komast áfram úr hverjum riðli og svo fjögur af sex liðum í þriðja sæti riðlanna. Ísland tapaði fyrri leiknum gegn Portúgal í haust með eins marks mun og þarf því tveggja marka sigur til að vera öruggt með að komast upp fyrir Portúgal og í þriðja sætið og þar með á EM. „Þær eru mjög sterkar,“ sagði landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir um portúgalska liðið. „Ég hef spilað á móti mörgum þeirra líka með unglingalandsliðum. Þær eru alveg með unga leikmenn með í bland við reynslumikla leikmenn. Þær eru sterkar maður á mann og það er mikill stígandi í þeirra liði þannig að þetta verður krefjandi leikur. „En ég hef fulla trú á liðinu.“ -Elín Klara Þorkelsdóttir Tapið fyrir Færeyjum slys en ekki bakslag Íslenska liðið hefur vaxið mikið frá tapinu gegn Portúgal í haust og vann til að mynda Svartfjallaland á heimavelli. Á miðvikudag tapaði liðið hins vegar gegn Færeyjum en leikmenn reyna að líta á þann leik sem slys, frekar en bakslag í þróun liðsins. „Ég myndi alveg segja að við eigum mikið inni,“ sagði landsliðskonan Andrea Jacobsen. „Bæði úr leiknum á móti Færeyjum og hvað þá fyrstu tveimur leikjunum í þessum riðli. Þannig að ég lít bara mjög björtum augum á þetta og er mjög jákvæð.“ Leikur Íslands og Portúgal er á morgun klukkan fjögur. Uppselt er á leikinn en hann verður sýndur beint á RÚV og hefst útsending í Stofunni fyrir leik klukkan 15:30.