Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrir stundu að bandaríski sjóherinn myndi stöðva för „allra skipa sem reyna að fara inn eða út úr Hormússundi“. Jafnframt segir Trump að herinn muni ekki hleypa neinu skipi þar um sem greitt hefur Íran toll til að sigla um sundið. Yfirlýsingin, sem birtist á samfélagsvef hans, kemur í kjölfar þess að friðarviðræður við Íran runnu út í sandinn um helgina. Innan við viku eftir að vopnahlé tók gildi milli ríkjanna tveggja hefur Trump hótað því að bandaríski herinn myndi „ljúka því litla sem eftir er af Íran.“ Í Íran greindu ríkisfjölmiðlar á sama tíma frá því að sérsveitir sjóhersins hefðu verið sendar til suðurstrandar landsins, sem bendir til viðbúnaðar vegna hugsanlegrar innrásar bandaríska hersins. JD Vance varaforseti Bandaríkjanna, sem leiddi bandarísku sendinefndina í viðræðunum í Pakistan, sagði að aðilarnir hefðu ekki náð samkomulagi þar sem Íranar neiti að gefa upp áform sín um að þróa kjarnorkuvopn. Hann flaug aftur til Bandaríkjanna snemma í morgun. Aðalsamningamaður Írans sagði að bandarísk stjórnvöld hefði ekki unnið sér inn traust landsins, á meðan ríkissjónvarp landsins kenndi „óeðlilegum kröfum“ Bandaríkjanna um kjarnorkumálið og Hormússund um að viðræðurnar runnu út í sandinn. Íranar segja að engar frekari viðræður væru fyrirhugaðar að svo stöddu. Fyrr hafði Trump gert lítið úr mikilvægi friðarviðræðnanna. „Hvort við gerum samning eða ekki skiptir mig engu máli,“ sagði Trump. „Ástæðan er sú að við höfum unnið.“