Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ég skil ekki af hverju ríkisstjórnin vandaði ekki betur til verka“

Read Full Article →

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, segist ekki skilja hvers vegna ekki var betur vandað til verka við fyrirætlaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Vísar hann þar í umsögn landskjörstjórnar sem barst utanríkismálanefnd í síðustu viku. Þar voru gerðar athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem bera á upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Sigurður Ingi segir að ekki megi bera upp svo gildishlaðna spurningu og bendir á að landskjörstjórn hafi einnig sett út á tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Vinnubrögð ríkisstjórnarinnar þykja honum einkennast af hroðvirkni. Í umsögn hennar er vakin athygli á því að væntanlegur kjördagur geti haft í för með sér „ákveðna erfiðleika við almennan undirbúning kosninganna og fræðslustarf“ vegna þess að undirbúningur kosninganna fari fram á aðalsumarleyfistíma. Þá gæti reynst erfitt að manna kjörstaði utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Sigurði Inga sýnist að ríkisstjórnin hafi hundsað eða gleymt að leita til landskjörstjórnar eða annarra ráðgjafa til að uppfylla alþjóðleg viðmið. Hann bendir á að þurfi að breyta spurningunni sé greinargerðin með þingsályktunartillögunni meira og minna öll vitlaus og þá þurfi að vinna hana að miklu leyti upp á nýtt. „Það er mjög erfitt að rökstyðja það fyrir þingið að tímasetning sem landskjörstjórn telur erfitt að framkvæma með faglegum hætti í lok sumars, að það sé hægt að viðhalda slíku án þess að leggja til einhverjar breytingar,“ segir Sigurður Ingi. Formaður segir nægan tíma til stefnu Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, segir athugasemdir landskjörstjórnar við orðalag spurningarinnar eðlilegar. Nægur tími sé til að bregðast við athugasemdum. „Landskjörstjórn er þarna að sinna sínu lögformlega hlutverki og það var óskað eftir umsögnum hennar.“ Nefndin bíði einnig umsagnar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Pawel segir nægan tíma til stefnu til að bregðast við. „Nefndin hefur lagt upp gott plan fyrir apríl varðandi gestakomur. Við höfum auðvitað líka leitað eftir umsögnum frá Feneyjarnefndinni og þetta á allt að nást þannig að reiknað verði með því að málið verði afgreitt frá þingnefndinni einhvern tímann í byrjun maí.“ Hvorki forsætisráðherra né utanríkisráðherra telja að umsögn landskjörstjórnar muni valda því að fresta þurfi þjóðaratkvæðagreiðslunni sem á að vera 29. ágúst.

Share this article