Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stefnir í metkjörsókn í Ungverjalandi

  • What: Election in Hungary
  • Impact: Political leadership change
Read Full Article →

Allt stefnir í metkjörsókn í Ungverjalandi, þar sem kosið er til þings í dag, að því er landskjörstjórn Ungverjalands segir. Nýjustu tölur sýna að 66% kjósenda á kjörskrá hafi þegar greitt atkvæði klukkan 15. Kjörstaðir opnuðu klukkan 06 í morgun og verður lokað klukkan 19 í kvöld (17 að íslenskum tíma). Allt útlit er fyrir að Péter Magyar velti Viktor Orbán úr sessi sem forsætisráðherra, en Orbán hefur setið síðastliðin sextán ár. Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, greiðir atkvæði í morgun. Það er ekki vandi að spá um hvað hann kaus, en spurningin sem brennur á honum og fylgismönnum hans þessa stundina er: Gerðu það nægilega margir aðrir?EPA / AKOS KAISER/HUNGARIAN PM GENERAL DEPARTMENT OF COMMUNICATION

Share this article