Fimm leikir voru á dagskránni í Bestu deild karla í dag. Þremur þeirra lauk nú rétt fyrir sjö: Valur 1-2 Þór KR 3-2 Keflavík KA 2-3 Stjarnan Byrja af krafti Þór er í efstu deild í fyrsta skipti síðan 2014 og er af flestum spáð falli. Þeir mættu Val á Hlíðarenda og fengu enga draumabyrjun því Dagur Orri Garðarsson kom heimamönnum yfir á 27. mínútu. Christian Greko Jakobsen jafnaði þó tíu mínútum síðar og 1-1 stóð í hálfleik. Sigurmark Þórsara kom ekki fyrr en á 89. mínútu, það skoraði Ingimar Arnar Kristjánsson eftir vel útfærða skyndisókn. 2-1 reyndust lokatölur og Þór byrjar Bestu deildina á sigri. Viðsnúningur eftir viðsnúning Í Frostaskjóli voru hinir nýliðarnir í heimsókn; Keflavík. Þar kom Arnór Ingvi Traustason KR-ingum yfir á sjöttu mínútu sem reyndist eina mark fyrri hálfleiks. Stefan Ljubicic skoraði svo tvívegis fyrir Keflvíkinga, á 55. mínútu og 79. Það dugði þó ekki því Stefán Árni Geirsson jafnaði á 86. mínútu og Alexander Rafn Pálmason, sem er nýorðinn 16 ára, skoraði sigurmark KR-inga á 88. mínútu. Slæm byrjun kostaði Norðanmenn Á Akureyri tók KA á móti Stjörnunni sem byrjaði af krafti. Emil Atlason skoraði á 4. mínútu, Örvar Eggertsson á 13. mínútu og staðan skyndilega orðin 0-2, Stjörnunni í vil. Birgir Baldvinsson minnkaði muninn á 33. mínútu og 1-2 voru hálfleikstölur. Emil Atlason skoraði annað mark sitt á 57. mínútu en það tók Jakob Héðinn Róbertsson einungis tvær mínútur að minnka muninn niður í eitt mark á nýjan leik. KA sótti og sótti síðustu mínútur leiksins en tókst ekki að jafna og Stjarnan fagnaði sigrinum. Lokaleikur fyrstu umferðar byrjar klukkan 19:30 í kvöld, þar mætast Fram og ÍA.