Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olían frá Rússum mun ekki bjarga Kúbu

Read Full Article →

Rússneskt olíuflutningaskip, sem flutti 730.000 tunnur af Úral-olíu, lagðist að bryggju rétt fyrir páska í norðurhluta kúbönsku hafnarborgarinnar Matanzas. Olían veitti Kúbu, sem þjáist af miklum eldsneytisskorti, tímabundinn létti á meðan efnahagur hennar er að stöðvast með snörpum hætti. Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að leyfa þessa sendingu er aflétting á tveggja mánaða hafnbanni sem hefur leitt til enn víðtækari eldsneytisskorts og aukins rafmagnsleysis um allt land. Trump, sem áður hafði hótað að leggja tolla á lönd sem halda áfram að útvega kommúnistaeyjunni eldsneyti, sagði um mánaðarmótin að hann væri þessu ekki mótfallinn. „Þeir verða að lifa af,“ sagði forsetinn um Kúbu. Bandaríska stjórnin hefur í marga mánuði reynt að steypa stjórnvöldum í Havana af stóli með friðsælum aðgerðum. Sjá einnig Vilja kommúnistana burt fyrir árslok „Óstarfhæfur efnahagur Kúbu verður ekki lagaður nema þar fari fram róttækar pólitískar og leiðtogabreytingar,“ sagði talskona Hvíta hússins, Karoline Leavitt, af sama tilefni. Ákvörðun stjórnvalda um að leyfa rússneska tankskipinu að komast til Kúbu kemur á sama tíma og aðstæður þar kunna að vera að versna hraðar en ráðamenn Washington höfðu gert ráð fyrir. Hún fylgir einnig í kjölfar nýlegrar tilraunar Bandaríkjanna til að beina eldsneyti og öðrum viðskiptalegum lífsnauðsynjum til agnarsmás einkageirans Kúbu framhjá ríkinu. Lífið í Havana þann 11. september eftir sólarhrings rafmagnsleysi. © EPA (EPA) Koma tankskipsins hefur gert skilaboð stjórnvalda óljósari og vakið spurningar um möguleika á frekari eldsneytissendingum. Forseti Mexíkó, Claudia Sheinbaum, sagði á um páskana að Mexíkó myndi vinna að því að endurnýja olíusendingar til Kúbu. Þær höfðu verið stöðvaðar seint í janúar eftir að Trump hótaði að leggja refsandi tolla á hvert það land sem afhenti Kúbu eldsneyti. Eldsneytiskreppa Kúbu hefur tæmt götur borga og bæja og almenningssamgöngur hafa að mestu leyti stöðvast. Háskólar hafa sent nemendur heim og sjúkrahús hafa frestað öllum nema brýnustu aðgerðum. Viðkvæmt og illa viðhaldið raforkukerfi eyjarinnar, leifar frá Sovétárunum, hefur orðið fyrir stórfelldum bilunum að undanförnu. Kerfið byggir á sjö orkuverum sem öll breyta olíu í rafmagn. Þau opnuðu flest á sjöunda áratugnum og þau eru löngu orðin úrelt.

Share this article