Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Fá vikufrest í viðbót til að sækja um embætti sýslumanns Íslands Brynjólfur Þór Guðmundsson Dómsmálaráðuneytið hefur framlengt frest til að sækja um embætti sýslumanns landsins alls um viku. Fresturinn átti að renna út á morgun en verður nú til 21. apríl. Embættið tekur til starfa um áramót þegar níu landshlutabundin sýslumannsembætti verða lögð niður og eitt sýslumannsembætti á landinu öllu tekur gildi. Skipað verður í embættið til fimm ára. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipar fyrsta sýslumann landsins. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Stofnaði reikning í nafni fyrrverandi og safnaði upp rúmri milljón í yfirdrátt Karlmaður er ákærður fyrir að draga sér fé með því að stofna reikning í nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar og nota hann til að millifæra yfir milljón á sjálfan sig. Hann er einnig grunaður um fjárdrátt gegn fyrrverandi tengdaföður sínum. Fyrir 30 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp „Maður náttúrlega getur ekkert treyst Dönum“ Leikstjóri þáttanna Danska konan er ánægður með viðtökurnar sem þættirnir hafa fengið í Danmörku. Hann hafi allt eins búist við því að þeim líkaði ekki þættirnir. Nýlega var tónlistin úr þáttunum gefin út á vínil. Fyrir 46 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Yfirfullar deildir og fangar vistaðir í ófullnægjandi klefum Fangelsiskerfið er algjörlega komið að þolmörkum þess að hægt sé að tryggja öryggi og eðlilega þjónustu, segir stjórn Fangavarðafélags Íslands. Almennir fangar eru vistaðir í einangrunarklefum og almennar deildir eru yfirfullar yfir daginn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Eigendur Hornbjargs lögðu ríkið í héraði Hornbjarg er ekki þjóðlenda heldur eign 41 manns sem stefndi ríkinu eftir að óbyggðanefnd ákvað að bjargið skyldi vera í eigu ríkisins. Ríkið var sýknað af kröfu fólks sem taldi sig eiga Bjarnarnes. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Ósigur Orbans er léttir í Brussel og annars staðar í Evrópu Komandi valdaskipti í Búdapest hafa áhrif langt út fyrir landamæri Ungverjalands; ekki síst í Brussel, þar sem Viktor Orban hefur löngum verið óþægur ljár í þúfu leiðtogaráðs og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægir vindar og víða rigning eða skúrir Austlæg eða breytileg átt víðast hvar um landið. Norðaustan tíu til átján á Vestfjörðum fram eftir degi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Bókmenntir „Hann getur enn í dag komið manni mjög á óvart og búið til mjög sterkar tilfinningar við lesturinn“ Þjóðfélagsumræða um dalandi lestur á verkum Halldórs Laxness hefur glætt áhuga á verkum nóbelskáldsins. Sérfræðingur á Borgarbókasafni segir útgáfuafmæli, vinsælar leikgerðir og leshring Víðsjár auka eftirspurnina. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran 1.639 voru teknir af lífi á síðasta ári Írönsk stjórnvöld hafa ekki tekið svo marga af lífi á einu ári síðan árið 1989 samkvæmt tveimur mannréttindasamtökum. Óttast er að aftökum eigi eftir að fjölga enn frekar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú 63.000 gátu ekki kosið á kjördegi Brynja Dögg Friðriksdóttir Keiko Fujimori er talin sigurstrangleg í forsetakosningunum. EPA / Renato Pajuelo Um 63.000 kjósendur bíða þess enn að kjósa í þing- og forsetakosningum í Perú. Kjósendurnir gátu ekki kosið á kjördegi í gær vegna skorts á kjörkössum og öðrum kosningagögnum á 15 kjörstöðum í höfuðborginni Lima. Kjörstaðir verða opnir áfram í dag vegna þessara mistaka. Alls eru um 27 milljónir kjósenda á kjörskrá og völdu þeir á milli 35 forsetaframbjóðenda. Keiko Fujimori er spáð sigri, en hún er ein fjögurra frambjóðenda sem fengu flest atkvæði. Útlit er fyrir að kosið verði milli þeirra í annarri umferð forsetakosninganna sem verða í júní. Fujimori er dóttir fyrrum forseta landsins Alberto Fujimori sem var forseti Perú frá 1994-2000. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bandaríkjaforseti gagnrýnir Leo XIV páfa harðlega Leo XIV páfi kaþólsku kirkjunnar biðlaði til leiðtoga á laugardaginn um að binda enda á ofbeldi og stríð. Þessi beiðni páfans féll vægast sagt ekki í kramið hjá Bandaríkjaforseta sem gagnrýndi páfa harðlega. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Reynir að mynda breiða ríkisstjórn þvert yfir miðju Stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku hafa staðið yfir undanfarnar vikur. Mette Frederiksen ætlar nú að láta á það reyna hvort hægt sé að mynda breiða ríkisstjórn þvert yfir miðju. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þriggja daga opinber heimsókn Sanchez til Kína hefst í dag Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, er á leið í sína fjórðu heimsókn til Kína á jafnmörgum árum. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja tengslin við annað stærsta hagkerfi heims. Kínverjar eru sagðir áhugasamir um viðskipti við Spánverja. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranska samninganefndin var skrefi frá því að komast að samkomulagi Brynja Dögg Friðriksdóttir Utanríkisráðherra Íran Abbas Araghchi. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Utanríkisráðherra Íran, Abbas Araghchi, segir að samninganefnd Írana hafi verið aðeins skrefi frá því að komast að samkomulagi við Bandaríkin í samningaviðræðunum í Islamabad í Pakistan á föstudaginn. Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X, sagði Araghchi að Íran hefði lagt sig fram um að binda enda á stríðið en þegar samninganefndin var aðeins skrefi frá því að ná samningi mætti henni hámarkshyggja, breytt markmið og hindranir. Hann bætti svo við að lærdómurinn væri enginn. „Gott leiðir af sér góðan vilja. Fjandskapur leiðir af sér fjandskap.“ Færsla utanríkisráðherra Íran Abbas Araghchi á X.com X / Abbas Araghchi 12. apríl 2026 kl. 22:29ERLENDAR FRÉTTIR Írland Ríkisstjórn Írlands lækkar skatt á eldsneyti í kjölfar mótmæla Eftir neyðarfund í dag tilkynnti ríkisstjórn Írlands um tímabundnar skattalækkanir á eldsneyti fram að júlí. Þá verður hækkun á kolefnisskatti frestað. Síðustu sex daga hafa bændur og vöruflutningabílstjórar mótmælt hækkandi eldsneytisverði. 12. apríl 2026 kl. 22:19ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland „Saman frelsuðum við Ungverjaland og losuðum okkur við Orbán-stjórnina“ Leiðtogi Tisza-flokksins í Ungverjalandi hélt sigurræðu fyrir gríðarlegum mannfjölda eftir stórsigur flokksins í þingkosningum. Búið er að telja nær öll atkvæði. 12. apríl 2026 kl. 21:24ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sex marka jafntefli í Úlfarsárdal Almarr Ormarsson Fram og ÍA skildu jöfn í lokaleik fyrstu umferðar Bestu deildar karla, 3-3. Markalaust var í hálfleik en Atli Þór Jónasson kom Frömurum yfir á 48. mínútu. Það tók Viktor Jónsson þó einungis fjórar mínútur að jafna og á 52. mínútu voru Skagamenn komnir 1-2 yfir eftir mark Markúsar Páls Ellertssonar. Markús Páll, sem er uppalinn Framari, skoraði annað mark sitt á 61. mínútu. Sigurjón Rúnarsson minkaði muninn á 76. mínútu og Kennie Chopart jafnaði í uppbótartíma. Skagamenn fagna marki Viktors RÚV / Mummi Lú Staðan í deildinni. Önnur umferð deildarinnar verður öll spiluð næsta föstudag. 12. apríl 2026 kl. 20:45MENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Söng við YouTube-myndskeið á Coachella-hátíðinni Justin Bieber tróð upp á Coachella-tónlistarhátíðinni í gærkvöld. Þar söng hann meðal annars við tónlistarmyndbönd laga sinna á Youtube. 12. apríl 2026 kl. 20:15INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fagnar boðaðri lækkun og treystir að hún skili sér til neytenda Framkvæmdastjóri FÍB fagnar boðaðri lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti og er bjartsýnn á að verðlækkanir skili sér til neytenda. 12. apríl 2026 kl. 19:35ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Orban játar ósigur Orban játaði ósigur rétt í þessu í ræðu til stuðningsmanna sinna. Búið er að telja nær 95 prósent atkvæða í þingkosningunum í Ungverjalandi. 12. apríl 2026 kl. 19:24ÍÞRÓTTIR Skotfimi Jón Þór bætti eigið Íslandsmet Almarr Ormarsson Skyttan Jón Þór Sigurðsson bætti eigið Íslandsmet í 50m liggjandi riffilskotfimi á Opna innanhússmótinu í Árósum í Danmörku í dag. Hann skoraði 629,8 stig og var með 47 X-tíur sem eru skot í allra innsta hring. Jón Þór með riffilinn í Árósum Skotíþróttasamband Íslands Er trommari í Diktu, flugmaður, Evrópumeistari í skotfimi og HM verðlaunahafi Jón Þór hefur orðið Evrópumeistari af 300 metra færi og fengið brons í sömu grein. Keppt er af 50 metra færi á Ólympíuleikum en reyndar bara í þriggja stöðu flokki; þar þurfa skyttur að skjóta liggjandi, krjúpandi og standandi 12. apríl 2026 kl. 19:09ÍÞRÓTTIR Fótbolti Nýliðarnir byrja með sigri á Hlíðarenda Þremur leikjum var að ljúka í Bestu deild karla í fótbolta. Nýliðar Þórs unnu Val 1-2, KR hafði betur gegn hinum nýliðunum, Keflavík, 2-1, og Stjarnan vann KA á Akureyri, 2-3. 12. apríl 2026 kl. 18:41ÍÞRÓTTIR Handbolti Sandra eftir sigurinn: „Svo geggjað fyrir kvennahandboltann á Íslandi“ Fyrirliðinn Sandra Erlingsdóttir var að vonum hæstánægð með sigur Íslands á Portúgal í undankeppni EM kvenna í handbolta í dag, 32-24. Hún segir stórmót opna fleiri tækifæri fyrir íslenskar handboltakonur. 12. apríl 2026 kl. 18:33ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Glænýjar kannanir gera ráð fyrir öruggum sigri Magyar Kannanir sem birtar voru eftir að kjörstöðum var lokað og hafa áður spáð fyrir um niðurstöður kosninga með góðu gengi spá fyrir um öruggan sigur Péter Magyar, leiðtoga Tisza-flokksins. 12. apríl 2026 kl. 18:25INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Aðgerðirnar gagnist helst fyrirtækjum og ferðamönnum Formaður Eflingar segir að skammtímaefnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar séu ekkert í líkingu við það sem stéttarfélagið hafi kallað eftir. Þær hjálpi fremur fyrirtækjum og ferðamönnum en verka- og láglaunafólki. 12. apríl 2026 kl. 18:11INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Frístundarstyrkur fyrir eldri borgara á Akureyri Akureyrarbær ætlar að bjóða upp á frístundarstyrk til eldra fólks. Formaður Landssambands eldri borgara telur framtakið afar jákvætt og mikilvægt sé að stuðla að heilbrigði og lífsgæðum þessa hóps. 12. apríl 2026 kl. 17