Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins en samkvæmt tilkynningu sagði hann sig úr flokknum í morgun. Hann hefur þegar greint forseta Alþingis frá ákvörðun sinni. Hann segir ástæðuna fyrir ákvörðuninni vera trúnaðarbrest sem varði persónuleg samskipti innan flokksins en að öðru leyti kjósi Guðmundur ekki að tjá sig frekar um málið. „Ég hyggst áfram gegna störfum sem alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka. Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka,“ segir í tilkynningu frá Guðmundi. Sjá einnig Heiðrún: „Dýr verður Flokkur fólksins allur“ Á sama tíma þakkar Guðmundur flokksfélögum sínum fyrir samfylgdina og samstarfið á síðustu árum. Hann minnist á baráttumál á borð við kjör öryrkja og aldraðra og áherslur flokksins í velferðarmálum. „Þeirri baráttu er ekki lokið og ég mun áfram leggja mig allan fram fyrir góðan málstað á Alþingi Íslendinga.“