Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.4.2026 | 15:43 Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Framboðslisti Miðflokksins í Árborg hefur verið úrskurðaður ólögmætur. Karl Gauti Hjaltason, þingmaður flokksins, gagnrýnir ákvörðunina. Samsett mynd mbl.is/Sigurður Bogi/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Listi Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð kynntur D-listinn sjálfkjörinn í Snæfellsbæ Listinn í Vesturbyggð ekki sjálfkjörinn Þessir flokkar bjóða fram í næsta mánuði Ellefu framboðslistar á kjörseðlum borgarbúa » Fleiri tengdar fréttir Framboðslisti Miðflokksins í Árborg hefur verið úrskurðaður ólögmætur og mun því flokkurinn ekki geta boðið fram í sveitarfélaginu. Þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi segir niðurstöðuna svæsna og ósanngjarna. Í samtali við mbl.is segir Karl Gauti Hjaltason yfirkjörstjórn Árborgar hafa úrskurðað á föstudag að listi flokksins í sveitarfélaginu hefði verið of seint fram kominn. Sú ákvörðun hafi verið kærð til úrskurðarnefndar kosningamála sem staðfesti í dag úrskurð kjörstjórnarinnar. Munaði 22 mínútum Segir Karl Gauti að listanum hafi verið skilað 22 mínútum of seint en framboðsfrestur rann út klukkan 12 að hádegi á föstudag. Bætir Karl Gauti við að öll gögn hafi þá verið undirrituð og löglega framfærð. Hins vegar hafi svo ekki verið neinn fulltrúi flokksins á staðnum til að staðfesta listann. „Þarna er svo mikill formalisti á ferðinni að þeir geta ekki horft fram hjá því að einhver maður mæti þarna og kalli að Miðflokkurinn ætli að bjóða fram og fengi þá frest sem allir aðrir fá í sólarhring til að laga gögn - sem við þurftum í raun og veru ekki vegna þess að öll okkar gögn voru komin í lag,“ segir Karl Gauti. Fengu ekki símtal Þá bætir þingmaðurinn við að augljóst sé að ef fulltrúi annars flokks í sveitarfélaginu hefði ekki verið á staðnum væri víst að kjörstjórnin hefði hringt í viðkomandi og boðað hann á staðinn. Það hafi hins vegar ekki verið gert í þessu tilfelli og segir Karl Gauti kjörstjórn sveitarfélagsins bera fyrir sig að hafa ekki verið með símanúmer til að hringja í. „Símanúmer Miðflokksins er nú bara já.is og á vefsíðu okkar. Það var nú auðvelt að finna númer til að hringja í ef þeir vildu ýta á menn.“ „Auðvitað eru þetta mistök hjá okkur“ „Af hverju var ekki mætt? Af því að það voru ungir menn sem sáu um að safna undirskriftum sem héldu að þetta væri allt saman rafrænt, enda voru allar undirskriftir rafrænar. Auðvitað eru þetta mistök hjá okkur að mæta ekki, að sjálfsögðu, en formalistinn er þarna hafður í hávegum svo illyrmislega að það er komið í veg fyrir framboð flokksins í sveitarfélaginu,“ segir Karl Gauti. Bætir hann við að Miðflokksmenn séu óánægðir og hissa á úrskurðinum. „Við héldum að svona væri ekki til í dag, svona vinnubrögð, og að það væri þarna hægt að finna einhver rök til þess að unnt væri að samþykkja lista sem væri rétt fram kominn og fullkomlega löglegur fyrir klukkan tólf. En bara af því að það stendur í lögunum tólf núll núll þá er það látið standa jafnvel þótt t.d. í Snæfellsbæ - þar kom bara fram einn listi sem varð til þess að yfirkjörstjórn í Snæfellsbæ hafði heimild í lögum til þess að framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa, ekki 22 mínútur heldur tvo sólarhringa. Þannig okkur finnst þetta náttúrulega mjög svæsin niðurstaða og ósanngjörn, að sjálfsögðu.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Listi Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð kynntur D-listinn sjálfkjörinn í Snæfellsbæ Listinn í Vesturbyggð ekki sjálfkjörinn Þessir flokkar bjóða fram í næsta mánuði Ellefu framboðslistar á kjörseðlum borgarbúa » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Aldrei leiðinlegt að vera með boltann Gríðarleg og óafturkræf áhrif Herjólfur siglir á takmörkuðu afli vegna bilunar Óleyfilegt varnarefni í kóríanderfræjum Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Gæti átt yfir höfði sér réttindamissi, sekt og kæru Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Lofað upp í ermina á Alþingi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára „Fagna þessari ákvörðun“ Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Aldrei leiðinlegt að vera með boltann Gríðarleg og óafturkræf áhrif Herjólfur siglir á takmörkuðu afli vegna bilunar Óleyfilegt varnarefni í kóríanderfræjum Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Ísland á EM eftir stórsigur „Vandamálin hverfa ekki bara“ Kaus í fyrsta skipti 63 ára Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Lofað upp í ermina á Alþingi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára „Fagna þessari ákvörðun“ Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu

Share this article