Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Keflavík tryggði sér oddaleik við KR

Read Full Article →

Keishana Washington.RÚV / Mummi Lú Keflavík rótburstaði KR 101-65 í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta í kvöld. Þar með jafnaði Keflavík stöðuna í unnum leikjum í einvígi liðanna í 2-2 og því þarf oddaleik til að skera úr um það hvort liðið kemst í undanúrslit. Grindavík, Haukar og Njarðvík hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Keishana Washington skoraði flest stig Keflavíkurkvenna í leiknum í kvöld eða 19, auk þess tók hún níu fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Hún var því aðeins einu frákasti frá þrefaldri tvennu. Oddaleikur Keflavíkur og KR verður spilaður á fimmtudagskvöld á heimavelli KR-kvenna í Frostaskjóli.

Share this article