- What: Booking.com data breach exposes user travel information
- Impact: Users' travel data may be at risk
Viðskipti | mbl | 14.4.2026 | 10:26 Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Þrjótar hafa komist yfir bókunargögn tengd Booking.com. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Öryggissérfræðingar hjá íslenska netöryggisfyrirtækinu Syndis vara við aukinni hættu á sérsniðnum netsvikum eftir að bókunargögn tengd ferðavefsíðunni Booking.com komust í umferð. Syndis bendir á í tilkynningu að nýlegur aðgangur óviðkomandi aðila að bókunargögnum sé sérstakt áhyggjuefni, þar sem slík gögn geti orðið fullkomið hráefni fyrir mjög markviss svik. Samkvæmt greiningu sérfræðinga felst áhættan ekki síst í því að gögnin innihalda nákvæmar upplýsingar um ferðir einstaklinga, sem gerir árásarmönnum kleift að sníða svikaherferðir að hverjum einstaklingi með mikilli nákvæmni. Geta vitað nákævæm ferðaplön fólks Í tilkynningunni segir einnig að sérfræðingar hjá Syndis bendi á að árásaraðilar geti meðal annars vitað nákvæm ferðaplön notenda, hvaða hótel viðkomandi gistir á, notað raunveruleg bókunarnúmer í svikaskilaboðum og hermt eftir Booking.com eða einstökum hótelum með mjög sannfærandi hætti. „Að mati sérfræðinga eykur þessi tegund upplýsinga verulega líkur á því að notendur falli fyrir svikum, þar sem skilaboð virðast koma frá traustum aðilum og innihalda staðfestar upplýsingar sem fórnarlambið þekkir þegar.“ Nýta tímaþrýsting Syndis bendir jafnframt á í tilkynningunni að árásarmenn nýti sér gjarnan aðstæður þar sem ferðamenn eru undir tímaþrýstingi, til dæmis rétt fyrir brottför eða meðan á ferð stendur. Þá séu notendur líklegri til að bregðast hratt við beiðnum um „staðfestingu“ eða „viðbótargreiðslu“. Í slíkum tilfellum sé algengt að send séu skilaboð í tölvupósti eða WhatsApp, notuð séu raunveruleg nöfn og bókunarupplýsingar og vísað sé á falskar vefsíður sem líkjast Booking.com eða hótelum. Sérstök viðvörun vegna sólmyrkva Syndis vill einnig hvetja jafnframt ferðamenn og almenning til að hafa sérstaklega augun opin fyrir svikum í tengslum við komandi sólmyrkva á Íslandi í ágúst nk. Sólmyrkvi verður 12. ágúst hér á landi. mbl.is/RAX „Reynsla af sambærilegum viðburðum sýnir að stórir ferðaviðburðir og mikill ferðamannastraumur geta skapað kjöraðstæður fyrir netsvik, þar sem ferðamenn eru undir tímapressu, breytingar á ferðum eða gistingu eru algengar og fólk gæti brugðist hratt við „brýnum“ skilaboðum.“ Öryggissérfræðingar hjá Syndis hvetja að lokum alla til að hafa eftirfarandi í huga: Aldrei slá inn kortaupplýsingar í gegnum hlekki í skilaboðum Staðfesta alltaf bókanir beint í gegnum opinbera vefi eða öpp Treysta ekki skilaboðum sem skapa mikinn tímaþrýsting Hafa í huga að raunveruleg fyrirtæki biðja sjaldan um greiðslur með óvæntum hætti. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Kaus í fyrsta skipti 63 ára Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri Betri samgangna Hæstiréttur hafnar beiðni Símans Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Sumarbústaðir áfram vinsælir Minnka flækjustigið við greiðslur Laun hér þau hæstu í Evrópu 75% Íslendinga vilja nýja staði Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Borga 137 milljónir til ferðamanna Hæstiréttur hafnar beiðni Símans Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Sumarbústaðir áfram vinsælir Minnka flækjustigið við greiðslur 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Borga 137 milljónir til ferðamanna Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Prís tekur nú við peningum Minnka flækjustigið við greiðslur Origo kaupir Maven Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Kaus í fyrsta skipti 63 ára Fólkið mun á endanum gefast upp Gæti átt yfir höfði sér réttindamissi, sekt og kæru Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri Betri samgangna Hæstiréttur hafnar beiðni Símans Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Sumarbústaðir áfram vinsælir Minnka flækjustigið við greiðslur Laun hér þau hæstu í Evrópu 75% Íslendinga vilja nýja staði Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Borga 137 milljónir til ferðamanna Hæstiréttur hafnar beiðni Símans Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Sumarbústaðir áfram vinsælir Minnka flækjustigið við greiðslur 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Borga 137 milljónir til ferðamanna Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Prís tekur nú við peningum Minnka flækjustigið við greiðslur Origo kaupir Maven Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu