Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Enginn að fara að koma á Laugardalsvöll og fokka í okkur“

Read Full Article →

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta spilar við Úkraínu í undankeppni HM í Brasilíu 2027 á Laugardalsvelli í dag. Riðill Íslands er afar sterkur því þar er að finna bæði heims- og Evrópumeistara Spánar og Englands. Svo er það Úkraína sem situr í 35. sæti styrkleikalista FIFA, en hvernig horfir íslenska liðið á andstæðing dagsins? „Við vitum að við erum að fara mæta hörkuliði. Það eru örugglega margir sem munu vanmeta þær en það má ekki. Þær eru virkilega duglegar og eru að koma frá stríðshrjáðu landi. Þær eru að spila fyrir eitthvað miklu stærra en þær sjálfar,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Íslands. Íslenska liðið berst að líkindum við Úkraínu um þriðja sæti riðilsins sem er umspilssæti og því gæti sigur í dag reynst afar dýrmætur. Góð blanda af gervigraskynslóðinni og gömlu hörkunni Glódís Perla segir liðið skipað góðri blöndu af ólíkum leikmönnum sem allir koma með sín sérkenni inn í liðið. „Við erum með blöndu af eldri og reyndari leikmönnum og yngri hungruðum leikmönnum sem vilja sýna hvað þær geta. Svo er það þessi unga kynslóð sem kom inn fyrir nokkrum árum sem er aðeins teknískari, gervigraskynslóðin.“ „Ég vona að við séum komin með góða blöndu af öllu inn í íslenska liðið. Auðvitað vil ég að það sem einkenni okkur sé þetta týpíska íslenska, að það sé barátta. Það er enginn að fara að koma á Laugardalsvöll og fokka í okkur. Það er það sem ég vil helst sjá frá liðinu.“ Ísland mætir Úkraínu í undankeppni HM kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Glódís Perla Viggósdóttir segir liðið góða blöndu af gervigraskynslóðinni, hungruðum leikmönnum og reynsluboltum. Sigur er mikilvægur í leiðinni að Brasilíu. Hugsar mikið um leiðina að HM Íslenska liðið hefur enn ekki spilað á HM. Ísland tapaði umspili við Portúgal um sæti á mótinu fyrir fjórum árum og Glódís Perla segir heimsmeistaramótið vera ofarlega í huga. „Ég persónulega pæli mikið í þessu. Mig langar að fara á HM fyrir Íslands hönd. Mig langar að fá að upplifa það. Að vera fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti væri gríðarlega stórt og eitthvað sem mig langar til að gera áður en ég klára minn feril.“ Hún segir liðsfélaga sína sama sinnis og að fyrsta skrefið í átt að mótinu sé sigur í dag. Glódís jafnar landsleikjametið Glódís Perla mun spila sinn 145. landsleik í dag og jafnar því leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Hún segir það ánægjulegt og vonar jafnframt að leikirnir verði enn fleiri fyrir Ísland. „Þetta er auðvitað gríðarlega gaman. Sara Björk er náttúrulega svakaleg fyrirmynd og goðsögn í fótbolta á Íslandi. Ég fékk þann heiður að spila með henni í mörg ár og læra af henni. Það er virkilega gaman að vera komin við hlið hennar í þessu og vonandi er nóg eftir.“ Leikur Íslands og Úkraínu hefst klukkan 18:30 og verður sýndur á RÚV 2. Upphitun hefst klukkan 17:50.

Share this article