Mögulegt er að fulltrúar Írans og Bandaríkjanna haldi viðræðum sín á milli áfram síðar í vikunni, eftir að þær runnu út í sandinn um helgina. Bandaríkjaher hóf í gær að hindra för skipa til og frá Íran um Hormússund. Áður höfðu Íranar lokað að mestu fyrir sundið eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið 28. febrúar. Reuters hefur eftir heimildamönnum sínum að sendinefndir Bandaríkjanna og Írans ætli mögulega að hittast á ný í lok vikunnar. Viðræður í Pakistan um síðustu helgi báru ekki árangur og eftir það hóf Bandaríkjaher að loka fyrir skipaumferð til og frá Íran um Hormússund. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að stjórnvöld í Íran hafi haft samband í gær og sagst vilja semja. Sjálfur segist Trump ekki samþykkja neitt sem feli í sér að Íranar komi sér upp kjarnorkuvopnum. Emmanuel Macron Frakklandsforseti hvatti í morgun forseta Bandaríkjanna og Írans til að hefja viðræður á ný. Bandaríkin og Íran hafa samið um tveggja vikna vopnahlé og var ætlunin í viðræðunum í Islamabad um síðustu helgi að reyna að semja um varanlegt vopnahlé.