- What: Suspect arrested for drug smuggling via Dettifoss
- Impact: Highlights border security challenges in Iceland
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í gæsluvarðhaldi grunaður um fíkniefnasmygl með Dettifossi Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Einn hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um að hafa reynt að smygla fíkniefnum til landsins með Dettifossi. Tveir aðrir voru handteknir en þeim hefur verið sleppt. Þetta herma heimildir fréttastofu. Lögreglan verst allra fregna af málinu. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að embættið sé með mál til rannsóknar en hann geti lítið tjáð sig að svo stöddu. Dettifoss. Aðsend / Eimskip Fyrir 1 mínútuÍÞRÓTTIR Fótbolti Leikdagur: Stórleikur fyrir Ísland í átt að HM Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Úkraínu á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2027. Sigur í dag er liðinu afar mikilvægur því Ísland mun að líkindum berjast við Úkraínu um þriðja sæti riðilsins sem er umspilssæti fyrir HM. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og upphitun í Stofunni klukkan 17:50. Hér í lifandi fréttavakt hitum við upp, fylgjumst með leiknum, birtum tilþrif og sjáum viðbrögð úr Laugardalnum fyrir og eftir leik. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Vill banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur kynnt aðgerðir sem ætlað er að styrkja stöðu leigjenda á leigumarkaði. Aðgerðirnar snúa meðal annars að auknum fyrirsjáanleika um leiguverð, endurskoðun tryggingafés og að eflingu gjaldfrjálsrar leigjendaþjónustu Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Strandabyggð Vantaði tugi milljóna í fjárhagsáætlun – „Greinilega illa unnin“ Framlög Strandabyggðar til fráveitu og sorphirðufélagsins Sorpsamlagsins voru ranglega skráð í fjárhagsáætlun og vantaði yfir 44 milljónir upp á í þeim liðum. Strandabyggð hefur samþykkt að fresta framkvæmdum fyrir um 47 milljónir. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Landsbyggðarbúum gæti fjölgað um 29 þúsund fengi fólk að vinna meira óstaðbundið Fengi fólk að vinna eins mikið óstaðbundið og það vill og telur mögulegt í sínu starfi gæti íbúum landsbyggðarinnar fjölgað um 20 prósent samkvæmt nýrri viðhorfskönnun. Fyrir 32 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sundlaugar opnar til 22 um helgar í sumar Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Breiðholtslaug. Reykjavik.is Sundlaugar Reykjavíkur verða opnar til klukkan 22 um helgar í sumar. Þetta var samþykkt á fundi menningar- og íþróttaráðs í síðustu viku. „Markmiðið er að bæta þjónustu við íbúa og samræma opnunartíma betur við lengri útivistartíma barna yfir sumarið,“ segir í tilkynningu frá borginni. Opnunartími sundlauga Reykjavíkur var styttur um klukkustund á laugardags- og sunnudagskvöldum í hitteðfyrra í hagræðingarskyni. Í fyrrasumar var opnunartíminn lengdur aftur yfir sumartímann. Í tillögunni sem samþykkt var í síðustu viku kemur fram að kostnaður vegna lengingar opnunartíma kosti 2,5 milljónir á mánuði eða 7,5 milljónir í heild yfir sumarið. Fyrir 33 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Snorri og teymið skrifa undir lengsta samning sögunnar Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason munu þjálfa karlalandslið Íslands í handbolta til sumarsins 2032 hið minnsta. Þetta er lengsti samningur sem þjálfari íslenska landsliðsins hefur fengið. Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Aðgangur netþrjóta að bókunargögnum „fullkomið hráefni fyrir markviss svik“ Öryggissérfræðingar vara við sérsniðnum netsvikum sem geta gert árásarmönnum kleift að sníða svikaherferðir að einstaklingum. Netþrjótar nýti sér gjarnan aðstæður þar sem ferðamenn eru undir tímaþrýstingi. Fyrir 57 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Undir ísnum og Jóhanna af Örk: Tíminn og töffararnir Kvikmyndagagnrýnandinn Kolbeinn Rastrick fjallar um kvikmyndirnar Undir ísnum og Jóhönnu af Örk í Lestinni á Rás 1. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sigurður Grétar leiðir Íbúalistann Íbúalistinn býður aftur fram í Stykkishólmi. Framboðið fékk þrjá af sjö bæjarfulltrúum síðast. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Grænland Múte B. Egede nýr utanríkisráðherra Grænlands Dagný Hulda Erlendsdóttir Múte B. Egede verður nýr utanríkisráðherra Grænlands. Þetta tilkynnti Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, í dag. Vivian Motzfeldt gegndi embættinu þar til flokkur hennar, Siumut, sagði sig úr stjórn landsins í mars. Eftir það sagði hún skilið við flokkinn. Hún hafði staðið í ströngu eftir hótanir Trumps Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland. Egede kemur úr stjórnmálaflokknum Inuit Ataqatigiit og gegndi embætti formanns landsstjórnar frá 2021 til 2025. Mute B. Egede, nýr utanríkisráðherra Grænlands. EPA-EFE / Ritzau Scanpix Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Íslendingar erlendis geta kosið frá og með föstudegi Brynjólfur Þór Guðmundsson Kosning utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga í vor hefst hjá sendiráðum, aðalræðisskrifstofum og kjörræðismönnum Íslands á föstudag. Þá geta Íslendingar erlendis byrjað að kjósa til sveitarstjórna. Kjörstaðir verða í öllum sendiskrifstofum Íslands erlendis, nema hjá fastanefnd Íslands hjá NATO, í aðalræðisskrifstofunum í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk og hjá kjörræðismönnum. Kjósendur þurfa að framvísa skilríkjum til að geta kosið og þeir bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Fólk þarf að senda atkvæði sitt beint á það sveitarfélag þar sem það er með skráð lögheimili. Kjósendur erlendis geta ekki sett kjörseðilinn í kjörkassa heldur verða þeir að senda hann í pósti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Kostnaður við rekstur sendiskrifstofa hækkaði um 472 milljónir á þremur árum Rekstrarkostnaður sendiskrifstofa Íslands á erlendri grundu hefur hækkað um hundruð milljóna síðustu þrjú ár. Rekstrarkostnaður sendiskrifstofunnar í Peking hefur hækkað um 100 milljónir frá 2023. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur 500 bleikjur sluppu úr landeldisstöð Eldisfiskur slapp úr eldisstöð Matorku við Grindavík. Talið er að um 500 fiskar hafi strokið. Fyrirtækið telur að þeir geti ekki lifað í fullsöltum sjó. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íran og Bandaríkin halda viðræðum mögulega áfram Sendinefndir Írans og Bandaríkjanna hittast mögulega á ný í Pakistan síðar í vikunni. Frakklandsforseti hvetur forseta ríkjanna til að semja um stríðslok sem fyrst. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Zelensky lofar að umdeild olíuleiðsla komist í gagnið Þorgils Jónsson Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að áætlun um að hleypa rennsli aftur á Druzhba-olíulögnina milli Rússlands og Ungverjalands fyrir lok mánaðar muni standast. Lögnin liggur í gegnum Úkraínu og skemmdist mikið í árás Rússa í janúar, að sögn stjórnvalda í Kænugarði. Málið varð að bitbeini milli Úkraínu annars vegar og Ungverjalands og Slóvakíu hins vegar. Stjórnvöld í ríkjunum, með þá Viktor Orban og Robert Fico í stafni, sökuðu Úkraínu um kúgunartilburði og kröfðust þess að olíurennsli yrði komið af stað. Zelenski sagði í dag að viðgerðum yrði lokið að hluta fyrir lok mánaðar þannig að hún kæmist í gagnið. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti. EPA / ANDREW KRAVCHENKO Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fyrrverandi samherjar Guðmundar Inga undrast brotthvarf hans Ráðherrar Flokks fólksins segja eftirsjá að Guðmundi Inga Kristinssyni sem gekk í gær úr flokknum. Þeir segjast ekki vita hvaða trúnaðarbrests hann vísaði til og segja að ekki sé ágreiningur í flokknum. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Hollywood-stjörnur mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Discovery Kvikmyndagerðarfólk mótmælir kaupum Paramount á Warner Bros Discovery og heldur því fram að samruninn muni fækka atvinnutækifærum á tímum þegar bransinn á síst efni á því. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um leiðtogafundinn í Höfða Hollywood-kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbachevs í Höfða er væntanleg í ágúst. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Inga Sæland talin standa sig verst og næstbest í nýrri könnun Forsætisráðherra er talin standa sig best allra ráðherra í nýrri könnun Maskínu. Skoðanir á frammistöðu mennta- og barnamálaráðherra eru blendnar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla ESA segir Ísland ekki tryggja rétt útsendra starfsmanna ESA krefst þess að íslensk stjórnvöld innleiði að fullu breytingar sem gerðar voru á reglugerð um útsenda starfsmenn 2018. Stofnunin segir Ísland ekki hafa tryggt ýmis réttindi starfsfólks sem kveðið er á um í reglugerðinni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ríflega 300 þúsund á kjörskrá Þorgerður Anna Gunnarsdóttir RÚV 302.688 kjósendur eru á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Þar af eru 155.023 karlar, 147.457 konur og 208 með hlutlausa kynskráningu. Þetta segir í tilkynningu frá Þjóðskrá sem hefur tekið saman tölulegar upplýsingar um kjörskrá. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum 2022 voru ríflega 277 þúsund á kjörskrá. Langflestir eru á kjörskrá á höfuðborgarsvæðinu eða ríflega 194 þúsund. Þar á eftir kemur Suðurland með yfir 27 þúsund kjósendur, Norðurland eystra með tæplega 25 þúsund og Suðurnes með tæplega 23 þúsund kjósendur. Í fámennasta sveitarfélaginu, Tjörneshreppi, eru 44 á kjörskrá. Í Reykjavík eru yfir 108 þúsund á kjörskrá. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Innbrotstilraunir á netinu fimmfölduðust nánast milli ára Tilkynningum til netöryggissveitarinnar CERT-IS fjölgaði um 26% milli ára. Flestar tilkynningar tengdust vefveiðum en mesta aukningin var í innbrotum og innbrotstilraunum á netinu sem nánast fimmfölduðust. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Enginn að fara að koma á Laugardalsvöll og fokka í okkur“ Ísland mætir Úkraínu í undankeppni HM kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Glódís Perla Viggósdóttir segir liðið góða blöndu af gervigraskynslóðinni