Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Landsbyggðarbúum gæti fjölgað um 29 þúsund fengi fólk að vinna meira óstaðbundið

  • What: Survey shows potential for increased remote work in rural areas
  • Impact: May influence future work and housing trends
Read Full Article →

Íbúum á landsbyggðinni gæti fjölgað um tæplega 29 þúsund væri fólki heimilt að vinna óstaðbundið í meira mæli. Þetta er meðal niðurstaðna úr könnun um viðhorf og væntingar til óstaðbundinna starfa og búsetu. Könnunin var unnin af Rannsóknarsetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst. Markmið könnunarinnar var að komast að því hve margir ynnu störf sín óstaðbundið, hversu margir teldu að þeir gætu unnið störf sín meira óstaðbundið og hvar fólk myndi vilja búa gæti það unnið störf sín óstaðbundið eins mikið og það gæti og vildi. Um könnunina Könnuninni svöruðu 2.347 þátttakendur. Alls 2.218 þátttakendur svöruðu spurningu um kyn, þar af voru 1.168 konur (53%), 1.031 karl (46%), 9 kvár (0,4%) og 10 sem sögðu annað eða vil ekki svara. 74% þátttakenda búa með maka og/eða börnum og 21% býr eitt eða með börnum án maka. Svörun yfir landið var nokkuð dreifð þar sem 38% svarenda koma af höfuðborgarsvæðinu en 62% af landsbyggðinni. Ríflega þriðjungur, 36,7 prósent, sagðist myndu vilja vinna meira óstaðbundið. Aðeins 7 prósent sögðust vinna 100 prósent óstaðbundið og 4 prósent sögðust vinna 75 til 99 prósent óstaðbundið. Rúmlega helmingur sagðist vinna starf sitt að einhverju leyti óstaðbundið. Fimmtungur flytti ef færi gæfist Flestir sem svöruðu könnuninni sögðust myndu vilja búa þar sem þeir búa nú þó þeir gætu unnið störf sín óstaðbundið eins mikið og þeir vildu, eða fjórir af hverjum fimm. Nítján prósent sögðust myndu vilja skipta um búsetu ef þeir gætu. Af þeim sem myndu vilja flytja af landsbyggðinni myndu rúmlega 82 prósent flytja á aðra staði á landsbyggðinni, en 15 prósent til höfuðborgarsvæðisins. Af þeim sem myndu vilja flytja af höfuðborgarsvæðinu myndu tæp 77 prósent flytja á landsbyggðina. „Að teknu tilliti til ofangreindra hlutfalla og íbúafjölda (á aldrinum 0-67 ára) þá myndi íbúum fjölga um 28.722 (20%) í landsbyggðunum en fækka um 29.411 (12%) á höfuðborgarsvæðinu ef fólki væri heimilt að vinna eins mikið óstaðbundið og þau teldu mögulegt í sínu starfi og vildu,“ segir í niðurstöðukafla rannsóknarinnar.

Share this article