- What: Icelandic police are not immediately fining drivers for using winter tires
- Impact: Drivers are advised to plan tire changes in advance due to weather conditions
Óheimilt er að aka á nagladekkjum frá og með 15. apríl.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Notkun nagladekkja er óheimil frá og með deginum í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki munu sekta fyrir akstur á slíkum börðum um sinn en hvetur fólk til að huga hið fyrsta að dekkjaskiptum. Ökumönnum verði gefinn fyrirvari áður en gripið verði til sekta, líkt og jafnan áður. Lögreglan segir í færslu á Facebook að engin þörf sé fyrir notkun nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu enda hlýtt í veðri og færðin hin ágætasta. Skynsamlegt sé að panta tíma fyrir dekkjaskipti. Töluverður erill var á dekkjaverkstæðum í gær og víða fullbókað næstu vikur.