Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framseldur til Lettlands vegna fíkniefnabrota

  • What: Lithuanian man charged with organized crime
  • Impact: Legal proceedings against suspected criminal activities
Read Full Article →

Landsréttur hefur staðfest að karlmaður sem lettnesk yfirvöld gruna um aðild að skipulagðri glæpastarfsemi verði framseldur þangað til lands. Lettar gruna manninn um að hafa sammælst við aðra menn um að starfrækja skipulögð brotasamtök með stórfelld fíkniefnabrot að meginmarkmiði. Hann er einnig grunaður um peningaþvætti og að hafa tekið þátt í handrukkun gegn manni sem skuldaði þeim pening. Maðurinn lagðist gegn framsalskröfunni og krafðist þess til vara að hún yrði háð þeim fyrirvara að hann myndi afplána dóminn í íslensku fangelsi ef hann yrði sakfelldur. Þeim kröfum höfnuðu íslenskir dómstólar. Landsréttur.RÚV / Ragnar Visage

Share this article